User manual
– Af viðskiptavinum á hótelum, mótelum, gistiheimilum og á
öðrum íbúðarstöðum
• Gætið þess að engar fyrirstöður séu í loftræstiopum, hvorki í
umlykju heimilistækisins né innbyggðum hlutum þess.
• Ekki nota vélknúin tæki eða aðrar leiðir til þess að hraða
affrystingartímanum, önnur en þau sem framleiðandi mælir
með.
• Ekki skadda kælirásina.
• Ekki nota rafmagnstæki í matvælageymsluhólfi tækisins nema
framleiðandi mæli með slíkum gerðum.
• Ekki nota vatnsúða og gufu til að hreinsa heimilistækið.
• Þvoið heimilistækið með rökum og mjúkum klút. Notið aðeins
mild þvottaefni. Ekki nota rispandi efni, stálull, leysiefni eða
málmhluti.
• Ekki geyma sprengifim efni, svo sem loftúðabrúsa með
eldfimum efnum í tækinu.
• Ef rafmagnssnúran er skemmd, verður að fá nýja frá
framleiðanda, þjónustuaðila hans eða svipuðum hæfum aðila
til þess að koma í veg fyrir hættu.
Öryggisleiðbeiningar
Uppsetning
AÐVÖRUN! Einungis til þess
hæfur aðili má setja upp þetta
heimilistæki.
• Fjarlægja skal allar umbúðir.
• Ekki setja upp eða nota skemmt
heimilistæki.
• Fylgja skal uppsetningarleiðbeiningum
sem fylgja með tækinu.
• Farðu alltaf varlega þegar þú hreyfir
tækið af því að það er þungt. Alltaf skal
nota öryggishanska.
• Gangið úr skugga um að loft geti leikið
um tækið.
• Bíðið í að minnsta kosti 4 klukkustundir
áður en tækið er tengt við rafmagn. Það
er til þess að gera olíu kleift að renna
aftur í þjöppuna.
• Ekki setja tækið upp nálægt ofnum eða
eldavélum, ofnum eða helluborðum.
• Bakhlið tækisins skal vera upp við vegg.
• Ekki setja tækið upp þar sem sól skín
beint á það.
• Ekki setja tækið upp á svæðum sem eru
of rök eða köld, til dæmis í
byggingarviðbótum, bílskúrum eða
vínkjöllurum.
• Þegar tækið er fært til skal lyfta því með
brúninni að framan til þess að forðast að
rispa gólfið.
ÍSLENSKA 39