User manual
Rafmagnstenging
AÐVÖRUN! Eldhætta og hætta á
raflosti.
• Heimilistækið þarf að vera jarðtengt.
• Allar tengingar við rafmagn skulu
framkvæmdar af rafverktaka með tilskilin
starfsréttindi.
• Gætið þess að rafmagnsupplýsingarnar
á tegundarspjaldinu passi við aflgjafann.
Ef ekki, skal hafa samband við rafvirkja.
• Alltaf nota rétt uppsetta innstungu sem
gefur ekki raflost.
• Ekki nota fjöltengi eða
framlengingarsnúrur.
• Gætið þess að valda ekki skaða á
rafmagnsíhlutum (t.d. rafmagnskló,
rafmagnssnúru, þjöppu). Hafið samband
við þjónustuver eða rafvirkja til þess að
skipta um rafmagnsíhluti.
• Rafmagnssnúran þarf að vera fyrir
neðan rafmagnsklónna.
• Aðeins skal tengja rafmagnsklóna við
rafmagnsinnstunguna í lok
uppsetningarinnar. Gætið þess að
rafmagnsklóin sé aðgengileg eftir
uppsetningu.
• Ekki toga í rafmagnssnúruna til að taka
heimilistækið úr sambandi. Togið alltaf í
rafmagnsklóna.
Notkun
AÐVÖRUN! Hætta á líkamstjóni,
raflosti eða bruna.
• Ekki skal breyta sérhæfingu þessa tækis.
• Ekki setja rafmagnstæki (t.d. ísvélar) í
tækið nema framleiðandi þeirra segi þau
henta til slíks.
• Gætið þess að valda ekki skaða á
kælirásinni. Hún inniheldur ísóbútan
(R600a), náttúrulegt gas, sem er mjög
umhverfisvænt. Gasið er eldfimt.
• Ef kælirásin skemmist skal gæta þess að
engir logar eða leiðir til kveikingar séu í
herberginu. Loftræstið herbergið.
• Ekki láta heita hluti snerta plasthluti
tækisins.
• Ekki setja gosdrykki í frystihólfið. Það
mun skapa þrýsting á drykkjarílátið.
• Ekki geyma eldfimar gastegundir og
vökva í tækinu.
• Ekki skal setja eldfimar vörur eða hluti
sem eru blautir af eldfimum vökva ofan á
eða nálægt heimilistækinu.
• Ekki snerta þjöppuna eða þéttinn. Þau
eru heit.
• Ekki fjarlægja eða snerta hluti úr
frystihólfinu er þú ert með blautar eða
rakar hendur.
• Ekki frysta aftur matvæli sem hafa verið
affryst.
• Fylgið geymsluleiðbeiningum á
umbúðum frystra matvæla.
Umhirða og þrif
AÐVÖRUN! Hætta á líkamstjóni
eða því að heimilistækið
skemmist.
• Áður en viðhald fer fram á tækinu skal
slökkva á því og aftengja aðalklóna frá
rafmagnsinnstungunni.
• Þetta tæki inniheldur kolvatnsefni í
kælieiningunni. Aðeins hæfir aðilar mega
sinna viðhaldi og endurhleðslu á
einingunni.
• Skoðið frárennsli tækisins reglulega og
hreinsið það ef þörf krefur. Ef frárennslið
er stíflað mun affryst vatn safnast fyrir í
botni heimilistækisins.
Förgun
AÐVÖRUN! Hætta á líkamstjóni
eða köfnun.
• Aftengið heimilistækið frá
rafmagnsgjafanum.
• Klippa rafmagnssnúruna af og fleygið
henni.
• Fjarlægið hurðina til að koma í veg fyrir
að börn eða dýr geti lokast inni í tækinu.
ÍSLENSKA
40