User manual

40
41
IS
3M™ PELTOR™ SportTac
Heyrnartól með styrkstýringu fyrir umhvershljóð og innstungu til tengja ytri búnað.
Lestu leiðbeiningarnar vandlega fyrir notkun og geymdu til þess að geta leitað í þær síðar.
1. ÍHLUTIR
A:1 Samanbrjótanleg höfuðspöng (ryðfrí stálspöng, TPE)
A:2 Skálarhaldari (ryðfrítt stál)
A:3 Tveggja punkta festing (POM)
A:4 Eyrnapúði (PVC þynna, PUR-frauð)
A:5 Skál
A:6 Skel
A:7 Festismella fyrir skel
A:8 Hljóðnemi með styrkstillingu fyrir umhvershlustun
A:9 Á/Af hnappur
A:10 (+) hnappur
A:11 (-) hnappur
A:12 Innstunga fyrir ytra tengi (J22)
2. AÐ SETJA UPP OG STILLA
Athugasemd! Ýta þarf hárinu kringum eyrun frá svo eyrnapúðarnir falli þétt að.
Gleraugnaspangir ættu að vera eins mjóar og mögulegt er og falla þétt að höfðinu til að
lágmarka hljóðleka.
2:1 Höfuðspöng sem má brjóta saman
(B:1) (B:2) Renndu skálunum út og hallaðu efra hluta þeirra út vegna þess að snúran á
að vera fyrir utan höfuðspöngina.
(B:3) Stilltu hæð skálanna með því að renna þeim upp eða niður á meðan
höfuðspönginni er haldið á sínum stað.
(B:4) Höfuðspöngin ætti að liggja þvert yr hvirlinn.
(B:5) Þegar stilla þarf höfuðspöng fyrir lítil höfuð er HY450/1 (fæst sem fylgihlutur) komið
fyrir innan á höfuðspönginni á milli hennar og hvirlsins.
3. NOTKUN/AÐGERÐIR
3:1 Að setja í rafhlöður
Opnaðu skelina hægra megin með því að renna smellunni út og niður. Fjarlægðu skelina.
Settu rafhlöðurnar (2xAAA) í rafhlöðuhólð. Gættu þess að rafhlöðurnar snúi rétt.
Komdu skelinni aftur fyrir á sínum stað og renndu smellunni upp á ný. Þrír tónar gefa til
kynna að rafhlaðan sé að tæmast, endurteknir með sífellt styttra millibili.
3:2 Að kveikja og slökkva á heyrnartólunum
Kveiktu eða slökktu á tækinu með því að þrýsta á Á/Af hnappinn og halda honum
niðri í tvær sekúndur. Tónboð staðfesta að kveikt hefur verið eða slökkt á tækinu.
Síðasta stilling vistast alltaf þegar slökkt er á heyrnartólunum. Það slökknar sjálfkrafa á
heyrnartækjunum eftir tvo tíma án virkni. Tónmerki gefur það til kynna síðustu mínútuna,
svo slökkva heyrnartólin á sér.
3:3 Hljóðstyrkur
Hægt er að stilla hljóðstyrk styrkstýringar fyrir umhvershljóð þreplaust frá lágmarki til
hámarks. Heildarhljóðstyrkur ytri hljóðgjafa og umhvershljóða samanlagt takmarkast
við 82 dB(A) við eyra. Mögnun umhvershljóða lækkar þegar ytra hljóðmerki berst inn
um ytra tengi. Þrýstu á (+) eða (-) hnappinn og haltu honum niðri til þess að hækka eða
lækka hljóðmerkið að vild.
Athugasemd! Sé umhvershljóðastilling höfð á lægsta styrk, eru umhvershljóð ekki
deyfð en það gæti reynst hættulegt.