LAVAMAT 64810 Þvottavél Notendaleiðbeiningar
Kæru viðskiptavinir, vinsamlega lesið notendaleiðbeiningarnar vel, og geymið þær til að geta flett upp í þeim síðar. Ef þvottavélin skiptir um eigendur , látið þá leiðbeiningarnar fylgja. 1 3 2 2 Eftirtalin tákn eru notuð í textanum: Öryggi Aðvörun! Leiðbeiningar, sem stuðla að bættu öryggi notenda. Athugið! Leiðbeiningar, sem koma í veg fyrir að vélin skemmist.
Efnisyfirlit Notkunarleiðbeiningar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 5 Öryggi . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 5 Förgun . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 6 Lýsing . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 7 Stjórnborð . . . . . . . . .
Leiðbeiningar um uppsetningu og tengingu . . . . . . . . . . . . . 24 Öryggisleiðbeiningar fyrir uppsetningu. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 24 Uppsetning vélarinnar. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . Flutningur vélarinnar. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . Flutningfestingar fjarlægðar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . Uppsetningarstaður .
Notkunarleiðbeiningar 1 Öryggi Áður en vélin er tekin í notkun • Farið eftir “Leiðbeiningum um uppsetningu og tengingu“. • Þegar vélin er afhent að vetri og hiti er undir frostmarki: Látið þvottavélina standa við herbergishita í 24 klst áður en hún er tekin í notkun. Rétt notkun • Þvottavélin er einungis ætluð fyrir venjulegan heimilisþvott, og til notkunar á heimilum. • Ekki er leyfilegt að breyta þvottavélinni eða endurbyggja hana.
• Ef ekki á að nota vélina um einhvern tíma bera að taka hana úr sambandi við rafmagn og skrúfa fyrir vatn. • Aldrei taka vélina úr sambandi með því að toga í snúruna, takið ávallt um rafmagnsklóna sjálfa. • Notið ekki fjölliða klær, millistykki eða framlengingarsnúrur. Brunahætta vegna ofhitnunar! • Ekki hreinsa vélina með því að sprauta á hana vatni. Hætta á raflosti! • Þegar þvegið er á miklum hita hitnar glerið í hurð vélarinnar.
Lýsing Stjórnborð Þvottaefnishólf Tegundarspjald (á bak við dyrnar) Sökkulspjald/ skolvatnsdæla Skrúfufætur (stillanleg hæð) Stjórnborð Hnappur þeytivinda/SKOLSTOP Hnappur TÍMAVAL Skjár Framvindugaumljós Hnappar fyrir Gaumljós HURÐ viðbótarstillingar Hnappur START/STOPP Þvottakerfisval 7
Yfirlit þvottakerfa Snúningshraði þeytivindu BLETTA ÞVOTTUR 1400 1000/600 SKOLSTOPP • • • •3) • •4) • • • • • • •4) • • 1kg • • • • • • VIÐKVÆMT 40, 30 3kg • • • • • ULL/SILKI H (handþvottur) 40, 30, KALT 2kg • • SKOLUN 3kg • • ORKUSPARNAÐUR 2) 6kg • AÐALÞVOTTUR 95, 60, 50, 40, 30 6kg • STRAUFRÍTT 60, 50, 40, 30 3kg STUTT STRAULÉTT 40 Þvottakerfi HRAÐÞVOTTUR • AUKA SKOLUN • mesta hleðsla 1) (þurr þvottur) FORÞVOTTUR Viðbótarstillingar VATNSLOSUN VIND
Notkun/Eiginleikar Orkusparnaðarkerfi við 60 °C fyrir lítið til venjulega óhreinan suðu- eða blandaðan þvott úr bómull/hör. Þvottamerki1) MO Kerfi fyrir venjulega til mikið óhreinan suðu- eða blandaðan þvott úr bómull/hör. JMO Þvottakerfi fyrir blönduð, straufrí efni og fyrir gerviefni. IKN Sérstakt kerfi við 40 °C fyrir straufría vefnaðarvöru sem að loknu þessu kerfi þarf aðeins að strauja létt eða alls ekki. Kerfi fyrir viðkvæman þvott, t.d.
Fyrir fyrsta þvott 1. Opnið þvottaefnisskúffuna. 2. Hellið um 2 lítra af vatni í þvottavélina gegnum þvottaefnisskúffuna. 3. Til að losna við efni sem hugsanlega kunna að sitja í tromlu eða belg eftir frágang vélarinnar frá verksmiðju skal í fyrsta þvotti þvo vélina tóma. Þvottakerfi: AÐALÞVOTTUR 95, ýtið á hnapp HRAÐÞVOTTUR, setjið í u.þ.b. 1/4 mæliskeið af þvottadufti. Yfirferð og flokkun á þvotti Yfirferð þvottar • Tæmið vasa. Fjarlægið aðskotahluti (t.d. smámynt, bréfaklemmur, nagla o.s.frv.).
Farið í gegnum þvottakerfi Dyr opnaðar/Þvottur settur í 1. Opna dyrnar: togið í handfang hurðarinnar. Þegar kveikt er á vélinni sýna gaumljósin HURÐ og START/STOPP hvort hægt sé að opna dyrnar: Gaumljósið HURÐ Gaumljósið START/STOPP Má opna dyrnar? lýsir grænt blikkar rautt eða er slökkt já lýsir grænt lýsir rautt já, eftir að ýtt hefur verið á hnappinn START/STOPP lýsir rautt eða er slökkt blikkar rautt eða lýsir rautt nei, vatnsyfirborð of hátt eða hitastig of hátt 2.
1. Togið þvottaefnisskúffuna út eins langt og hægt er. 2. Fyllið á þvottaefni/mýkingarefni. 3. Ýtið þvottaefnisskúffunni alveg inn. Þvottaduft/Töflur fyrir aðalþvott Blettahreinsisalt/-töflur Mýkingarefni/ skol/sterkja Þvottaduft/Töflur fyrir forþvott eða vatnsmýkingarefni Þvottaduft/töflur fyrir aðalþvott Þegar vatnsmýkingarefni er notað og nota þarf hægra hólfið fyrir forþvottaefni, setjið þá vatnsmýkingarefnið með aðalþvottaefninu í hólfið vinstra megin.
Þeytivinduhraða breytt/Skol stopp valið 3 Þvottavélin notar venjulega mesta leyfilega snúningshraða, sem hentar völdu þvottakerfi. Hægt er að minnka snúningshraðann: Ýtið á hnappinn Þeytivinda/SKOLSTOPP uns gaumljósið lýsir við rétta stillingu. Einnig er hægt að breyta snúningshraðanum fyrir síðustu þeytivindu þvottakerfisins. Þá skal: 1. ýta á hnappinn START/STOPP. 2. breyta snúningshraða. 3. ýta aftur á hnappinn START/STOPP.
FORÞVOTTUR Heitur forþvottur á undan aðalþvottinum sem sjálfkrafa fylgir, í þvottakerfum AÐALÞVOTTUR og STRAUFRÍTT er vinding á milli, en ekki í kerfinu VIÐKVÆMT. BLETTA ÞVOTTUR Fyrir mikið óhreinan eða blettóttan þvott. Blettahreinsi er bætt í þvottinn á þeim tíma í þvottakerfinu þegar hann hefur mest áhrif. Þessi stilling á bara við þegar þvegið er á a.m.k. 40°C, því blettahreinsiefnin vinna ekki við lægri hita.
Framvinda þvottakerfis 3 • Framvinduskjárinn sýnir hvaða stig þvottakerfisins er í gangi hverju sinni. • Skjárinn sýnir hve langur tími (í mínútum) er eftir uns þvottakerfið lýkur vinnslu. Tíminn sem áætlað er að sé eftir getur lengst eða staðið í stað á meðan þvottakerfið vinnur, því kerfið lagar sig að breytilegum þáttum á borð við tegund og magn þvottar, ójafnvægi í þeytivindu, aukaskolun o.fl.
– eða snúið kerfisvalhnappinum fyrst á SLÖKKT og síðan á VINDING. Breytið snúningshraða ef á þarf að halda og ýtið á hnappinn START/ STOPP (vatninu er þá dælt út og þvotturinn síðan undinn). Barnaöryggi Þegar barnaöryggi er á er ekki hægt að loka dyrum vélarinnar. Uppsetning barnaöryggis: Snúið snúningshnappi (innan á hurð vélarinnar) réttsælis með mynt eins langt og hann kemst.
Þvottaefnisskúffa Best er að hreinsa þvottaefnisskúffuna reglulega. 1. Fjarlægið þvottaefnisskúffuna með því að toga fast í hana. 2. Fjarlægið mýkingarefnishólfið úr miðskúffunni. 3. Hreinsið alla hlutina með vatni. 4. Ýtið mýkingarefnishólfinu alveg inn, svo að það sitji fast. 5. Hreinsið allt þvottarými þvottavélarinnar, sér í lagi túðurnar efst í þvottahólfinu, með bursta. 6. Leggið þvottaefnisskúffuna á sinn stað og ýtið henni inn.
Vandamál Hugsanleg ástæða Úrlausn Rafmagnssnúra er ekki í Stingið klónni í samband. sambandi eða öryggi er ekki Prófið öryggi. í lagi. Þvottavélin vinnur ekki. Dyrnar eru ekki alveg lokaðar. Lokið dyrunum, bíðið uns lásinn smellur í. Hnappinum START/STOPP ekki haldið inni nógu lengi. Haldið hnappinum START/ STOPP lengur inni. Ekki hægt að loka dyrum. Barnaöryggi er á. Taka barnaöryggi af. Þegar ýtt er á hnapp birtist Errá skjánum.
Vandamál Þvottavatnið freyðir mikið. Hugsanleg ástæða Líklega var sett of mikið þvottaefni í vélina. Fylgið leiðbeiningum framleiðenda um skammtastærð. Frárennslisslangan er beygluð. Réttið úr slöngunni. Dælan liggur hærra en í E20 birtist. leyfilegri hæð. Gaumljósið ENDIR blikkar 2x, og jafnframt heyrast 2 hljóðmerki Skolvatnsdæla stífluð. (Vandamál með frárennsli vatns.) Mýkingarefni ekki bætt í skolvatn, hólfið w fyrir mýkingarefni fullt af vatni. Vinsamlega hafið samband við notendaþjónustu.
Þegar þvotturinn þvæst ekki nógu vel Þvotturinn er gráleitur og í tromlunni liggur kalk • Of lítið þvottaefni var sett í vélina. • Ekki var notuð rétt tegund af þvottaefni. • Mikil óhreinindi voru ekki meðhöndluð sérstaklega. • Þvottakerfi eða hitastig var ekki rétt stillt. Í þvottinum eru gráir blettir • Þvottur með smyrsli, fitu eða olíu var þveginn með of litlu þvottaefni. • Þvegið var við of lágt hitastig.
Neyðartæming 1 Aðvörun! Áður en neyðartæming er framkvæmd skal slökkva á vélinni og taka rafmagnsklóna úr sambandi! Aðvörun! Þvottavatnið, sem rennur úr neyðartæmingarslöngunni, getur verið heitt. Hætta á bruna! Látið þvottavatnið kólna áður en neyðartæming er framkvæmd! 1. Opnið og fjarlægið sökkulspjaldið. 2. Takið út neyðartæmingarslönguna. 3. Stillið upp flötu afrennslisíláti. Losið því næst þéttitappa með því að snúa honum rangsælis og toga hann út. 4. Þvottavatnið rennur út.
Skolvatnsdæla 1 Skolvatnsdælan er viðhaldsfrí. Aðeins þarf að opna dælulokið ef vatn hættir að dælast út, t.d. ef dæluhjólið er stíflað. Gætið alltaf að því, áður en sett er í vélina, að engir aðskotahlutir séu í vösum eða liggi inn á milli í þvottinum. Bréfaklemmur, naglar o.s.frv., sem hugsanlega komast með þvotti í vélina, verða eftir í dæluhúsinu (í gildru sem varnar þess að aðskotahlutir komist inn í dæluhjólið).
Tæknilegar upplýsingar 5 Þetta tæki uppfyllir eftirtaldar ESB-viðmiðunarreglur: – Viðmiðunarregla nr. 73/23/EWG frá 19.02.1973 um lágspennu – Viðmiðunarregla EMV nr. 89/336/EWG frá 03.05.1989 ásamt viðauka nr. 92/31/EWG – Viðmiðunarregla nr. 93/68/EWG frá 22.07.1993 Hæð x breidd x dýpt 850 x 598 x 603mm Dýpt þegar hleðsludyrnar eru opnar 980 mm Stillanleg hæð ca.
Leiðbeiningar um uppsetningu og tengingu 1 Öryggisleiðbeiningar fyrir uppsetningu • Þessa þvottavél má ekki fella inn í innréttingu. • Áður en tækið er tekið í notkun skal athuga hvort það hafi skaddast í flutningum. Alls ekki má taka skaddað tæki í notkun. Ef skemmdir hafa orðið skal hafa samband við sölustað. • Áður en tækið er tekið í notkun þarf að fjarlægja allar flutningsfestingar. Annars getur tækið sjálft eða nærliggjandi húsgögn skemmst við næstu þeytivindingu.
• Flytjið vélina aldrei án þess að setja upp flutningsfestingar. Fjarlægið ekki flutningsfestingarnar fyrr en þar sem vélin er sett upp! Flutningur án flutningsfestinga getur leitt til skemmda á vélinni. • Ekki lyfta vélinni með því að grípa hurð dyr hennar eða um sökkulinn. Þegar vélin er flutt á trillu: • Setjið trilluna aðeins undir hlið vélarinnar. Flutningfestingar fjarlægðar 1 Flutningsfestingar verður að fjarlægja áður en vélin er tekin í notkun. Gerið eins og hér segir: 1.
3. Skrúfið, með meðfylgjandi lykli, miðskrúfuna A á baki þvottavélarinnar úr. Togið plasttappann út. 4. Skrúfið stóru skrúfurnar tvær B og hliðarskrúfurnar sex C á baki þvottavélarinnar úr. 5. Togið stálspöngina D af. 6. Skrúfið litlu hliðaskrúfurnar sex C aftur á.
7. Opnið hurðina og takið aðrennslisslönguna úr tromlunni. Fjarlægið frauðplastið, sem fest er með límbandi, af hurðaþéttilista. 8. Lokið efri litlu götunum og stærri götunum á hliðunum með plasttöppunum, sem fylgja vélinni. Ábending: Við mælum með, að flutningsöryggin séu geymd, til að nota þau aftur við flutninga. Flytjið vélina aldrei án flutningsfestinga. Tæmið vélina vandlega fyrir flutning, eins og lýst er í kaflanum “Neyðartæming”.
Uppsetning tækis Hinir fjórir fætur vélarinnar eru fyrirfram stilltir. Hægt er að vinna gegn miklum ójöfnum í undirlagi með því að stilla einn eða fleiri fætur á nýtt. Notið til þess sérstakan lykil, sem fylgir með. Athugið! Ekki laga ójöfnur í gólfi með því að leggja fjöl, pappa eða annað undir vélina, heldur lagið þær með því að laga til fæturna, sem hægt er að stilla hæðina á.
1. Opnið hurðina og takið aðrennslisslönguna úr tromlunni. 2. Festið slönguna við vélina með horntenginu. Mikilvægt! Beinið aðrennslisslöngunni ekki niður á við. Snúið slöngunni til hægri eða vinstri, allt eftir stöðu vatnskranans. 3. Stillið slönguna rétt af með því að losa upp á rónni. Herðið rónna aftur eftir að aðrennslisslanga hefur verði stillt af, til að forðast leka. 4. Festið slönguna með slöngurónni að 3/4” við vatnskranann. Notið aðeins þá slöngu sem fylgir vélinni.
Frárennsli vatns Hæðarmunur frá gólfi að vatnsfrárennsli má ekki vera meiri en 1 metri. Ef þörf er á framlengingu má aðeins nota slöngu frá framleiðanda vélarinnar. (Mest 3 m hliðrun á gólfi og þá allt að 80 cm hæð). Hjá notendaþjónustu má fá frárennslisslöngur af mismunandi lengd. Frárennsli í vatnslás Gangið frá samskeytunum stútur/ vatnslás með hosuklemmu (sem fæst í sérvöruverslunum). 1 Frárennsli í vask eða baðkar Athugið! – Ekki er hægt að notast við lítinn vask.
Ábyrgðarskilmálar ÍSLAND Samkvæmt skilmálum Félags Raftækjasala Seljandi veitir kaupanda, TVEGGJA ÁRA ÁBYRGÐ*, frá tilgreindum afgreiðslutíma og er hún fólgin í viðgerð eða endurnýjun á hverjum þeim hluta þess sem áfátt kann að vera, enda bendi líkur til þess að um framleiðslu-eða efnisgalla sé að ræða.
Lágmúli 8, pósthólf 8760, 128 Reykjavik, sími 530-2800, Fax 530-2810, www.ormsson.is *Bræðurnir Ormsson ehf. veita ÞRIGGJA ÁRA ÁBYRGÐ á öllum AEG þvottavélum á Íslandi sem fyrirtækið annast sölu og dreifingu á skv. skilmálunum hér að framan. Þjónustumiðstöðvar viðskiptavina ÍSLAND Þjónusta á AEG heimilstækjum fyrir höfuðborgarsvæðið er hjá Raftækjaþjónustunni Lágmúla 8, sími 553-7500 og rafmagnsverkstæðum sem tengd eru umboðsmönnum Bræðranna Ormssson ehf. um land allt. Bræðurnir Ormsson ehf.
Þjónusta Þegar vandamál koma upp skaltu athuga hvort ekki sé hægt að leysa málið með upplýsingum úr leiðarvísinum (kafli “Hvað á að gera, þegar...”). Ef þú getur ekki leyst vandamálið upp á eigin spýtur skaltu hafa samband við þjónustuaðila eða viðgerðarþjónustu. Til að flýta fyrir afgreiðslu þurfa eftirtaldar upplýsingar að liggja fyrir: – tegundartákn – vörunúmer (PNC) – raðnúmer (S-No.
www.electrolux.