LAVAMAT 74850A LAVAMAT 76850A Notendaleiðbeiningar Þvottavél
Efnisyfirlit Takk fyrir að velja eina af okkar hágæða vörum. Vinsamlegast lesið notendahandbókina vandlega til að tryggja að heimilistækið vinni stöðugt á hámarksafköstum. Þannig er hægt að glöggva sig fljótt og örugglega á öllum vinnslueiginleikum. Við mælum með að þú geymir handbókina á öruggum stað svo hægt sé að grípa til hennar hvenær sem hentar. Og vinsamlegast látið handbókina fylgja heimilistækinu ef nýr eigandi tekur við því í framtíðinni.
Öryggisupplýsingar Umbúðir fjarlægðar Staðsetning og jafnvægisstilling Vatnsinngangur Lekavari Frárennsli 29 32 32 33 33 3 TENGING VIÐ RAFMAGN 34 UMHVERFISÁBENDINGAR Efni í umbúðum Vistfræðileg heillaráð 35 35 35 Með fyrirvara á breytingum LEIÐBEININGAR UM NOTKUN ÖRYGGISUPPLÝSINGAR Lesið vandlega og geymið til upplýsingar í framtíðinni. • Öryggi þessa heimilistækis er í samræmi við kröfur í iðnaðinum og lagaskilyrði um öryggi heimilistækja.
Öryggisupplýsingar Innsetning • Þetta heimilistæki er þungt. Aðgát skal viðhöfð ef þarf að færa það. • Þegar umbúðirnar eru fjarlægðar, gangið úr skugga um að heimilistækið sé ekki skemmt. Ef nokkur vafi leikur á því skal ekki nota tækið heldur hafa samband við viðgerðaraðila. • Fjarlægja verður allar flutningsfestingar og umbúðir fyrir notkun. Alvarlegar skemmdir geta orðið á eignum og vörunni sjálfri ef ekki er farið eftir þessu. Sjá viðeigandi kafla í notendahandbókinni.
Vörulýsing 5 • Tryggið að börn eða gæludýr klifri ekki inn í tromluna. Tækið er með sérstakan búnað til að koma í veg fyrir að börn eða gæludýr festist inni í tromlunni. Til að virkja þennan búnað, snúið hnappnum (án þess að þrýsta á hann) innan á hurðinni réttsælis þar til grófin er lárétt. Notið smápening ef þörf krefur. Til að aflæsa þessum búnaði og gera mögulegt að loka dyrunum á ný, snúið hnappnum rangsælis þar til grófin er lóðrétt.
Stjórnborð Þvottaefnisskúffa Hólf fyrir þvottaefni fyrir forþvott . Þvottaefni fyrir forþvott er sett í upphafi þvottakerfisins Hólf fyrir duft eða fljótandi þvottaefni fyrir aðalþvott . Hólf fyrir fljótandi bætiefni (mýkingarefni, sterkju). Hólf fyrir blettaeyði fyrir aðalþvott með STAIN valstillingu (blettastillingu) . STJÓRNBORÐ Hér fyrir neðan er mynd af stjórnborðinu. Á henni sést þvottakerfisskífan, hnapparnir og skjárinn. Vísað er til þeirra með viðeigandi tölustöfum á næstu síðum.
7 START/STOPP hnappur 8 TíMAVAL hnappur 9 Skjár Skjár 9.1 9.2 9.3 9.4 9.9 9.5 9.6 9.7 9.8 9.1 Hitavísir og KALT tákn 9.2 Vinduhraðavísir, HALDA SKOLVATNI , NÆTURKERFI tákn 9.3 Skjár sem sýnir framvindu þvottakerfis: FORÞVOTTUR , AÐALÞVOTTUR , SKOL , VINDA , TÆMING , OFSKAMMTUR • Skjárinn sem sýnir framvindu þvottakerfis sýnir þvottastigin í kerfinu sem valið er. • Meðan á þvottastigi stendur blikkar svört lína undir þvottastigstákni þvottakerfisins sem valið var.
Fyrsta notkun – Ef upp koma notkunarvandamál birtast hugsanlega aðvörunarnúmer, til dæmis (sjá kaflann «Hvað skal gera ef...»). • Lok þvottakerfis – Þegar þvottakerfi hefur klárast blikkar núll á skjánum, táknið fyrir DYR birtist og hægt er að opna dyrnar. 9.8 ÞVOTTASEINKUN tákn 9.9 BARNALÆSING tákn FYRSTA NOTKUN • Tryggið að tengingar við rafmagn og vatn séu í samræmi við leiðbeiningar um uppsetningu og tengingu. • Fjarlægið einangrunarplastið og annað slíkt efni úr tromlunni.
Dagleg notkun DAGLEG NOTKUN Setjið þvottinn í vélina 1. Opnið dyrnar varlega með því að toga hurðarhandfangið út á við. Setjið þvottinn í vélina, einn hlut í einu og hristið úr hverri flík eins mikið og hægt er. 2. Lokið dyrunum tryggilega. Það verður að heyrast smellur til að dyrnar séu alveg lokaðar. Athugið! Passið að láta þvott ekki klemmast á milli dyra og gúmmíþéttingarinnar. Mælið skammt af þvottaefni og mýkingarefni Nýja heimilistækið þitt var hannað til að spara bæði vatn, orku og þvottaefni. 1.
Dagleg notkun 2. Ef þörf krefur, hellið mýkingarefni í hólfið merkt (magn má ekki fara upp fyrir MAX línuna á skúffunni). Lokið skúffunni varlega. Veljið þvottakerfi með þvottakerfisskífunni (1) Hægt er að velja þvottakerfi fyrir hvaða þvott sem er með því að fylgja lýsingu í þvottakerfistöflunum (sjá «Þvottastillingar»). Snúið þvottakerfisskífunni á viðkomandi þvottakerfi Þvottakerfisskífan ákveður þvottaferlið (t.d.
Dagleg notkun 11 Þrýstið endurtekið á hnappinn til að breyta vinduhraða ef óskað er eftir að hann sé annar en þvottavélin leggur til. HALDA SKOLVATNI: ef þetta er valið tæmist vatnið úr síðasta skoli ekki út til að koma í veg fyrir að þvottur krumpist. Við lok þvottakerfisins birtast táknin og HALDA SKOLVATNI á skjánum, táknið fyrir DYR (dyr læstar) helst kveikt, gaumljósið á hnappnum 7 slökknar og dyrnar eru læstar til að sýna að tæma þurfi vatnið úr vélinni.
Dagleg notkun Aukavalið VIÐKVÆMT Með þetta aukaval virkt meðhöndlar vélin betur viðkvæman þvott. Vélin bætir einu skoli við þvottakerfið fyrir bómull og gerviefni. Viðkomandi tákn birtist á skjánum. Þetta aukaval er ekki hægt að velja með aukavalinu Aukaskoli. Mælt er með að nota þetta aukaval á þvott sem er ekki litafastur og er þveginn oft. Aukavalið AUKASKOL (viðbótarskol) Þetta heimilistæki er hannað til að spara vatn.
Dagleg notkun 13 Dyrnar eru læstar í gegnum allan seinkunartímann. Ef óskað er eftir að bæta þvotti í vélina á meðan hún er að bíða eftir að fara í gang, þrýstið á hnapp 7 til að virkja stopp stillingu vélarinnar. Þegar dyratáknið hverfur er hægt að opna dyrnar. Bætið þvottinum í, lokið dyrunum og þrýstið á hnapp 7 aftur. Að velja þvottaseinkun. • Veljið kerfi og aukaval ef með þarf. • Veljið seinkun. • Þrýstið á hnapp 7 : og vélin byrjar þá að telja niður klukkutímana.
• • • • • snúið þvottakerfisskífunni á veljið TÆMING eða ÞEYTIVINDING lækkið vinduhraðann ef þörf krefur með viðkomandi hnappi Þrýstið á hnapp 7 Í lok þvottakerfis sýnir skjárinn blikkandi . Táknið fyrir HURÐ hverfur af skjánum og þá er hægt að opna hurðina. til að slökkva á þvottavélinni. Fjarlægið þvottinn úr tromlSnúið þvottakerfisskífunni á unni og athugið vandlega að hún sé tóm. Skrúfið fyrir vatnskranann ef ekki á að þvo meiri þvott.
Þvottastillingar Kerfi Hæsti og lægsti hiti Lýsing á kerfi Hámarkshleðsla Gerð þvottar Aukaval GALLABUXUR 60° Kalt Aðalþvottur Skol Löng þeytivinda á 1200 snún. á mín. Hámarkshleðsla 3,5 kg Í þessu kerfi, Gallabuxur, er hægt að þvo flíkur eins og buxur, skyrtur og jakka og auk þess jersey efni (prjónavoð) úr hátækniefnum. (Aukavalið Aukaskol virkjast sjálfkrafa).
Þvottastillingar Kerfi Hæsti og lægsti hiti Lýsing á kerfi Hámarkshleðsla Gerð þvottar FíNSKOLUN Skol Stutt þeytivinda á 1200 snún. á mín. Hámarkshleðsla 7 kg Þetta kerfi skolar og vindur bómullarföt sem hafa verið þvegin í höndunum Vélin skolar nokkrum sinnum og klárar svo með þeytivindingu. Aukaval LÆKKUN VINDUHRAÐA HALDA SKOLVATNI NÆTURKERFI AUKASKOL VATNSLOSUN Tæming á vatni Hámarkshleðsla 7 kg Tæmir síðasta skolvatn úr vélinni í kerfum með aukavali þar sem vatn verður eftir í vélinni.
Þvottastillingar Kerfi Hæsti og lægsti hiti Lýsing á kerfi Hámarkshleðsla Gerð þvottar Aukaval ÚTIVISTAR FATNAÐUR 40° Kalt Aðalþvottur Skol Stutt þeytivinda á 800 snún. á mín. Hámarkshleðsla 3 kg Sérstakt kerfi fyrir íþróttaföt. Þegar þetta kerfi er valið er ekki mælt með að bæta við neinum bætiefnum. LÆKKUN VINDUHRAÐA HALDA SKOLVATNI AUKASKOL SPORTKLÆÐI 40° Kalt Forþvottur Aðalþvottur Skol Stutt þeytivinda á 1200 snún. á mín.
Góð ráð Kerfi Hæsti og lægsti hiti Lýsing á kerfi Hámarkshleðsla Gerð þvottar ORKUSPARNAÐUR 60 60° Aðalþvottur Skolar Löng þeytivinding á hámarkshraða Hámarkshleðsla 7 kg Hvít og litaföst bómull . Hægt er að nota þetta kerfi á lítið eða venjulega óhreinar bómullarflíkur. Hitinn lækkar og þvottatími lengist. Þannig næst góður þvottur sem sparar orku.
Góð ráð 19 Hámarkshleðsla Ráðlögð hámarkshleðsla er tilgreind í þvottakerfistöflunum. Viðmiðunarreglur: • Bómull, lín: full tromla en ekki of þétt hlaðið í hana; • Gerviefni: tromlan ekki meira en full til hálfs; • Viðkvæm efni og ull: ekki meira en þriðjungshleðsla í tromlu. Þvottur með hámarkshleðslu nýtir vatn og orku á sem bestan hátt. Hlaðið minna í vélina ef þvottur er mjög óhreinn.
Meðferð og þrif Tjörublettir: notið fyrst blettahreinsi, spritt eða bensínhreinsi, nuddið svo með hreinsikremi. Þvottaefni og bætiefni Góður þvottur fer líka eftir vali á þvottaefni og notkun á réttu magni af því til að forðast sóun og vernda umhverfið. Þótt þvottaefni brotni niður í náttúrunni, þá innihalda þau efni sem geta raskað viðkvæmu jafnvægi náttúrunnar ef þau eru í miklu magni. Val á þvottaefni fer eftir hvað á að þvo (viðkvæmt, ull, bómull o. s. frv.), lit, þvottahitastigi og óhreinindum.
Meðferð og þrif 21 mælum framleiðanda duftsins. Þessi meðferð hjálpar til við að koma í veg fyrir kalkleifar í vélinni. Eftir hvern þvott Skiljið dyrnar eftir opnar um stund. Þetta hjálpar til við að fyrirbyggja myglu og að leiðinleg lykt magnist upp innan í heimilistækinu. Ef dyrnar eru opnar milli þvotta hjálpar það líka til við að varðveita þéttinguna. Viðhaldsþvottur Þvottur við lágan hita getur valdið uppbyggingu kalkleifa innan á tromlunni. Við mælum með viðhaldsþvotti með reglulegu millibili.
Meðferð og þrif Ekki þrífa tromluna með efnum sem innihalda sýru, ræstiefni sem innihalda klór eða járn eða stálull. 1. Fjarlægið ryðbletti af tromlunni með hreinsiefni fyrir ryðfrítt stál. 2. Látið vélina þvo eitt kerfi tóma til að þrífa í burtu allar hreinsiefnaleifar. Kerfi: Stutt bómullarkerfi á hámarkshita og bæta í u.þ.b. 1/4 mælibolla af þvottaefni. Dyraþétting Athugið dyraþéttinguna við og við og fjarlægið alla aðskotahluti sem festast í fellingunum.
Meðferð og þrif 7. 8. 23 Þegar vatnið er hætt að koma út, skrúfið þá dælulokið af með því að snúa því rangsælis og takið síuna úr. Notið töng ef þörf krefur. Hafið ávallt tusku við höndina til að þurrka upp leka þegar lokið er tekið af. Hreinsið síuna undir rennandi kranavatni til að ná allri ló úr. Fjarlægið alla aðskotahluti og ló úr hólfinu þar sem sían var og úr dæluhjólinu. 9. Athugið vel hvort dæluhjólið snýst (það snýst í rykkjum).
Meðferð og þrif Síurnar á innslöngunni þrifnar Ef vélin fyllist ekki, hún er lengi að fyllast af vatni, starthnappurinn blikkar gulu ljósi eða skjárinn (ef til staðar) sýnir viðeigandi viðvörun (sjá nánari upplýsingar í kaflanum ,,Hvað skal gera ef...", athugið þá hvort síurnar á innslöngunni séu stíflaðar. Síurnar á innslöngunni þrifnar: 1. Skrúfið fyrir kranann. 2. Skrúfið slönguna af krananum. 3. Hreinsið síuna í slöngunni með stífum bursta. 4. Skrúfið slönguna aftur á kranann.
Hvað skal gera ef... 25 Frostvarnir. Ef vélin er notuð á stað þar sem hitastigið gæti farið niður fyrir 0°C, gerið eftirfarandi: 1. Skrúfið fyrir vatnskranann og skrúfið innslönguna af honum; 2. Setjið bæði neyðartæmingarslönguna og innslönguna í skál á gólfinu og látið vatnið tæmast úr vélinni; 3. Skrúfið innslönguna aftur á og komið neyðartæmingarslöngunni fyrir á sínum stað eftir að hafa sett tappann í hana; Þetta tæmir allt vatn úr vélinni, kemur í veg fyrir ísmyndun og þar með skemmdir.
Hvað skal gera ef... Vandamál Hugsanleg orsök/lausn Þvottavélin fer ekki í gang: Dyrnar eru ekki lokaðar. • Lokið dyrunum tryggilega. Klóin er ekki rétt sett í innstunguna. • Setjið klóna í innstunguna. Enginn straumur í innstungunni. • Athugið rafmagnskerfið í húsinu. Öryggi hefur slegið út í rafmagnstöflu. • Skiptið um öryggi. Þvottakerfisskífan er ekki í réttri stöðu og hnappur 7 er ekki inni. • Snúið skífunni og þrýstið á hnapp 7 aftur. Þvottaseinkun hefur verið valin.
Hvað skal gera ef... Vandamál 27 Hugsanleg orsök/lausn Það er vatn á gólfinu: Þvottaefni er of mikið eða hentar ekki (freyðir of mikið). • Minnkið magn af þvottaefni eða notið aðra tegund. Athugið hvort slöngur eða slöngufestingar leka. Oft er erfitt að sjá slíkt þegar vatn rennur niður slönguna; athugið hvort hún sé rök. • Skoðið tenginguna við innslönguna. Útslangan er skemmd. • Skiptið um slöngu. Lokið á neyðartæmingarslöngunni var ekki sett aftur á eða sían var ekki skrúfuð rétt í eftir hreinsun.
Tæknilegar upplýsingar Vandamál Hugsanleg orsök/lausn Vinding byrjar seint eða vélin þeytivindur ekki. Rafeindastýrði jafnvægisbúnaðurinn hefur gripið inn í því þvotturinn dreifist ójafnt um tromluna. Tromlan skiptir um stefnu og dreifir úr þvottinum. Þetta getur gerst í nokkur skipti áður en jafnvægi er náð og tromlan snýst eðlilega. Ef þvotturinn er enn ójafnt dreifður eftir nokkrar mínútur þá þeytivindur vélin ekki. • Dreifið þvottinum jafnt um tromluna. Of lítill þvottur er í vélinni.
Upplýsingar um orkuneyslu 29 Vatnsþrýstingur Lágmark Hámark 0,05 MPa 0,8 MPa Hámarkshleðsla Bómull 7 kg Vinduhraði Hámark 1400 snún. á mín. (L74850A) 1600 snún. á mín. (L76850A) UPPLÝSINGAR UM ORKUNEYSLU Kerfi Orkunotkun (KWh) Vatnsnotkun (lítrar) Hvít bómull 95° 2.10 62 Bómull 60° 1.35 58 Orkusparnaður 60° 1) 1.05 45 Bómull 40° 0.75 58 Orkusparnaður kalt 0.09 41 Gerviefni 40° 0.55 51 Viðkvæmt 40° 0.55 63 Ull/ Handþvottur 30° 0.
Innsetning 1. Eftir að umbúðir eru fjarlægðar skal leggja vélina varlega á bakið til að fjarlægja einangrunarplastið af botninum. 2. Takið rafmagnssnúruna og útslönguna úr slönguhaldaranum aftan á heimilistækinu. 3. Skrúfið festingarnar þrjár af með lyklinum sem fylgir með vélinni.
Innsetning 4. Rennið út viðkomandi plastskinnum. 5. Opnið dyrnar á vélinni, takið innslönguna úr tromlunni og fjarlægið einangrunarplastkubbinn sem festur er við dyraþéttinguna. 6. Fyllið efra og minna gatið og hin tvö stærri með viðkomandi plasttöppum sem koma í pokanum með notendahandbókinni. 7. Tengið innslönguna eins og lýst er í kaflanum «Vatnsinngangur».
Innsetning Staðsetning og jafnvægisstilling Látið vélina sitja á flötu og hörðu gólfi. Tryggið að loftstreymi sé óheft í allt í kringum vélina og sé ekki hamlað af teppum eða neinu slíku. Áður en vélin er sett á litlar flísar, leggið gúmmílag á milli. Reynið aldrei að laga ójöfnur í gólfinu með því að setja viðarkubba, pabba eða annað efni undir vélina.
Innsetning 33 3. Losið olnbogatengið örlítið til að geta stillt slönguna í rétta átt. Þegar innslangan vísar rétt, munið eftir að herða hana til að koma í veg fyrir leka. 4. Tengið slönguna við krana með 3/4” skrúfgangi. Notið ávallt slönguna sem kemur með vélinni. Ekki má lengja innslönguna. Ef hún er of stutt og notandi vill ekki færa kranann, verður að kaupa nýja lengri slöngu sérstaklega ætlaða fyrir slíka notkun.
Tenging við rafmagn Það er hægt að gera með því að binda hann með snæri við kranann á vaskinum eða festa hann við vegginn. 2. Í frárennslisgrein á vaski. Þessi grein verður að vera fyrir ofan gildruna svo að beygjan sé minnst 60 cm frá jörðu. 3. Beint í frárennslispípu í hæð ekki undir 60 cm og ekki yfir 90 cm. Það verður alltaf að leika loft um endann á útslöngunni, það er að segja innra ummál frárennslispípunnar verður að vera meira heldur en ytra ummál útslöngunnar.
Umhverfisábendingar 35 UMHVERFISÁBENDINGAR Táknið á vörunni eða á umbúðum hennar táknar að vöruna megi ekki meðhöndla sem heimilissorp. Þess í stað ber að skila henni á viðeigandi endurvinnslustöð sem tekur við rafeindabúnaði og rafmagnstækjum. Með því að tryggja að vörunni sé fargað á réttan hátt stuðlar þú að því að koma í veg fyrir neikvæð áhrif sem röng förgun vörunnar gæti hugsanlega haft á umhverfi og heilsu.
132941270 A 332010 www.aeg electrolux.