LAVATHERM 57820 Barkalaus þurrkari Notendaleiðbeiningar
Kæru viðskiptavinir, vinsamlega lesið notendaleiðbeiningarnar vel, og geymið þær til að geta flett upp í þeim síðar. Ef uppþvottavélin skiptir um eigendur , látið þá leiðbeiningarnar fylgja. 1 3 2 2 Eftirtalin tákn eru notuð í textanum: Öryggi Aðvörun! Leiðbeiningar, sem stuðla að bættu öryggi notenda. Athugið! Leiðbeiningar, sem koma í veg fyrir að vélin skemmist.
Efnisyfirlit Notkunarleiðbeiningar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 5 Öryggi . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 5 Förgun . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 7 Umhverfisráð. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 7 Lýsing . . . . . . . . . . . . .
Stillingar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 23 Tæknilegar upplýsingar. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 24 Notkunargildi . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 24 Leiðbeiningar um uppsetningu og tengingu . . . . . . . . . . . . . 25 Öryggisleiðbeiningar vegna uppsetningar. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .
Notkunarleiðbeiningar 1 Öryggi Áður en tækið er tekið í notkun • Lesið kaflann “Leiðbeiningar um uppsetningu og tengingu” • Áður en tækið er tekið í notkun skal athuga hvort það hafi skemmst í flutningi. Tæki sem hefur orðið fyrir skemmdum má alls ekki tengja. Ef skemmdir hafa orðið, ber að hafa samband við seljandann. Rétt notkun • Þurrkarinn er aðeins ætlaður til notkunar á heimilum og til að þurrka venjulegan fatnað. • Ekki er leyfilegt að breyta þurrkaranum eða endurbyggja hann.
Öryggi barna • Geymið umbúðir þar sem börn ná ekki til. Hætta á köfnun! • Börn átta sig oft ekki á þeim hættum sem fylgja meðhöndlun rafmagnstækja. Leyfið börnum ekki að vera ein nálægt þurrkaranum. • Verið ávallt viss um að börn eða lítil dýr klifri ekki inn í tromlu þurrkarans. Lífshætta! Látið hurð þurrkarans vera lokaða, þegar hann er ekki í notkun. Almennt öryggi • Aðeins faglærðir viðgerðarmenn mega gera við þurrkarann.
Förgun 2 2 1 Umbúðir Allar umbúðirnar eru umhverfisvænar og endurvinnanlegar. Plasthlutar eru merktir með alþjóðlega stöðluðum skammstöfunum, t. d. >PE<, >PS< o.s.frv. Fargið umbúðum utan af vélinni á endurvinnslustöð. Eldri vélar Fargið úreltum vélum á þann hátt sem endurvinnslustöðvar sveitarfélagsins bjóða upp á. Aðvörun! Þegar taka á tækið úr notkun ber að taka rafmagnsklóna úr innstungu. Klippið rafmagnssnúruna í sundur og fjarlægið ásamt klónni. Eyðileggið lásinn á hurðinni.
Lýsing Skúffa með þéttivatnsgeymi Stjórnborð Fínsigti (lósigti) Ljós innan í vél Grófsigti (lósigti) Örsía (lósigti) Tegundarspjald Hleðsludyr (flytjanlegar hjarir) Sökkuldyr framan við varmaskipti Skrúffætur (stillanleg hæð) Loftrásir Stjórnborð Skjár Hnappur ÞURRKSTIG Hnappur Þurrkunargaumljós TÍMAVAL Hnappa- og gaumljósasvæði 8 Kerfisvalhnappur Framvindugaumljós Viðhaldsgaumljós – VARMASKIPTIR (hreinsa!) – LOSA VATN (tæma geymi!) – SIGTI (hreinsa lósigti!)
Fyrir fyrstu þurrkun Til að losna við efni sem hugsanlega kunna að sitja í vélinni eftir frágang hennar frá verksmiðju skal þurrka af tromlunni með rökum klút eða setja af stað stutta þurrkun (30 MÍN) með rökum klútum. Flokkun og undirbúningur þvottar Flokkun þvottar • Flokkið þvottinn eftir efni hans: – Bómull/hör fyrir þurrkkerfin BÓMULL. – Blönduð efni og gerviefni fyrir þurrkkerfin STRAUFRÍTT. • Flokkið eftir þvottamerkjum.
Kerfistafla BÓMULL ÞURRKSTIG VIÐKVÆMT 1) HLJÓÐMERKI Notkun/Eiginleikar mn MJÖG ÞURRT 6kg • • • • VEL ÞURRT 6kg • • • • Full þurrkun á þykkum plöggum, t.d. frottéfatnaði eða frottéhandklæðum. mn 6kg • • • • Full þurrkun á jafnþykkum plöggum, t.d. frottéfatnaði, prjónafatnaði eða frottéhandklæðum. mn MEÐALÞURRT RAKT 6kg • • • • Fyrir þunn plögg sem eftir á að strauja, t.d. prjónafatnað eða bómullarskyrtur.
SPORTKLÆÐI STRAULÉTT ULL VIÐRAÐ HLJÓÐMERKI VIÐKVÆMT 1) ÞURRKSTIG 30 MÍN MJÖG VIÐKVÆMT 1) Þurrkkerfi mesta hleðsla (þurr þyngd) Viðbótarstillingar 1kg • • - - 6kg 1kg 1kg 1kg • • • • • • • • • - - - Notkun/Eiginleikar Þvottamerki m l2) n Til að þurrka einstök stykki betur eða fyrir litla hleðslu undir 1kg. mn • Sérstakt kerfi ætlað fyrir hversdagsfatnað á borð við gallabuxur, háskólaboli o.s.frv., þar sem efnin eru misþykk (t.d. við buxnauppbrot eða sauma).
Þurrkun Kveikt á tæki/Kveikt á ljósi Veljið eitthvert þurrkkerfi með kerfisvalhnappinum eða veljið stillinguna LJÓS. Nú er kveikt á tækinu. Ef hurðin er opin logar ljós í tromlunni. Hleðsludyr opnaðar/Þvottur settur inn 1. Opnið hleðsludyr: – Ýtið annað hvort fast á dyrnar (álagspunktur ) – eða ef kveikt er á tækinu: ýtið á hnappinn HURÐ. 2. Leggið þvottinn inn (hann á að vera laus í sér). 1 Athugið! Ekki klemma þvott á milli hurðarinnar og gúmmíþéttilistans. 3. Lokið dyrunum vel.
Val á viðbótarstillingum ÞURRKSTIG Til að fínstilla þurrkstig þvottarins. Frá + til +++ verður þvotturinn þurrari. 1. Ýtið á hnappinn ÞURRKSTIG og endurtakið, þar til ljósið lýsir við það þurrkstig, sem óskað er. Ef þess er óskað má einnig nota hnappana MJÖG VIÐKVÆMT, HLJÓÐMERKI eða VIÐKVÆMT. MJÖG VIÐKVÆMT Fyrir sérlega milda þurrkun á viðkvæmri vefnaðarvöru með þvottamerkið l og fyrir efni sem þola illa hita (t.d. akrýl eða viskós). Þvottakerfið notar minni hita en önnur kerfi.
Stilling tímavals 3 3 Með hnappinum TÍMAVAL er hægt að fresta gangsetningu þurkkerfis um allt frá 30 mínútum (30') til 23 klukkustunda (23h). 1. Veljið þurrkkerfi. 2. Ýtið endurtekið á hnappinn TÍMAVAL uns skjárinn birtir þann tíma sem óskað er að líði þar til kerfið fer af stað, t.d. 12h, ef kerfið á að byrja eftir 12 klukkustundir. Gaumljósið TÍMAVAL lýsir. Ef skjárinn sýnir 23h og ýtt er einu sinni enn á hnappinn er hætt við tímaval. Þá birtist 0' og vinnslutími kerfisins sem valið er. 3.
Þvotti bætt við eða hann tekinn út áður en kerfi lýkur 1. Opnið hleðsludyrnar. 1 Aðvörun! Þvotturinn og tromlan geta verið heit. Hætta á bruna! 2. Bætið við þvotti eða takið út. 3. Lokið hleðsludyrum vel. Smellur verður að heyrast í lásnum. 4. Ýtið á hnappinn START/STOPP til að halda áfram. Þurrkkerfi lýkur/Þvottur tekinn út 3 Þegar þurrkun er lokið loga gaumljósið ENDIR og KRUMPUVÖRN. Ef hnappurinn HLJÓÐMERKI var inni, heyrist hljóðmerki með hléum.
Hreinsun og viðhald Hreinsun á lósigti 1 Til að tryggja að þurrkarinn vinni óaðfinnanlega, þarf að hreinsa lósigtin (örsíu og fínsigti) eftir hverja þurrkun. Athugið! Notið þurrkarann aldrei án lósigtis eða ef lósigti er skemmt eða stíflað. 1. Opnið hleðsludyr 2. Hreinsið örsíuna, sem situr í neðri hluta hleðsluhurðarinnar, með rakri hendi. 3. Ýtið læsingarhnappinum við grófsíuna niður. Grófsían opnast. 4. Takið fínsigtið út. 5. Fjarlægið ló úr fínsigtinu, best er að gera það með rakri hendi.
3 Hreinsið allt sigtissvæðið Ekki er þörf á að hreinsa allt sigtissvæðið eftir hverja þurrkun, en það þarf að skoða reglulega og hreinsa burt ló ef þarf með. 6. Takið þá um ofanverða grófsíuna og togið fram, þar til hún losnar úr báðum festingunum. 7. Fjarlægið ló af öllu sigtissvæðinu – helst með ryksugu. 8. Ýtið báðum töppunum á grófsigtinu inn í festingarnar við dyrnar, uns þeir smella á sinn stað. 9. Setjið fínsigtið aftur í. 10. Ýtið á grófsigtið uns það smellur inn í læsinguna.
Tæming á vatnsgeymi 1 Tæmið vatnsgeyminn eftir sérhverja þurrkun. Þegar vatnsgeymirinn fyllist stöðvast þurrkun sjálfkrafa og það kviknar á gaumljósinu LOSA VATN. Til að geta haldið áfram með þurrkkerfið þarf fyrst að tæma vatnsgeyminn. Aðvörun! Þéttivatnið er ekki hæft til drykkjar eða notkunar við matreiðslu. 1. Takið skúffuna með vatnsgeyminum alveg út (1) og togið stút geymisins upp eins langt og hann kemst (2). 3 3 18 2. Hellið þéttivatninu í vask eða annað niðurfall. 3.
Hreinsun á varmaskipti 1 Ef gaumljósið VARMASKIPTIR logar, þarf að hreinsa varmaskiptinn. Athugið! Notkun tækisins þegar varmaskiptir er óhreinn getur leitt til skemmda. Að auki eykst orkunotkunin. 1. Opnið hleðsludyrnar. 2. Opnið sökkulspjaldið: Ýtið á læsingarhnapp í neðanverðu hleðsluopinu og opnið sökkulspjaldið til vinstri. 3. Hreinsið ló innan úr hurð og framan úr varmaskiptinum. Strjúkið af þéttlista hurðarinnar með rökum klúti. 4. Snúið báðum öryggisskífunum inn á við. 5.
Hreinsun tromlu 1 3 Athugið! Ekki hreinsa tromlu með ræstiefnum eða með stálull. Kalk í vatni eða mýkingarefni geta myndað næstum ósýnilega skán innan í tromlunni. Þá er ekki lengur víst að tækið skynji þurrkstig þvottarins rétt. Þvotturinn kemur blautari úr þurrkaranum en reiknað var með. Þurrkið innan úr tromlunni með rökum klút og venjulegu hreinsiefni (t.d. edikblöndu).
Vandamál Þurrkun ekki nægjanlega góð. Hugsanleg ástæða Úrlausn Rangt þurrkkerfi valið. Veljið annað þurrkkerfi næst þegar þurrkað er (sjá kaflann “Kerfistafla“). Lósigti stíflað. Hreinsið lósigti. Varmaskiptir óhreinn. Hreinsið varmaskipti. Röng hleðsla. Fylgið leiðbeiningum um hámarkshleðslu. Loftrásir stíflaðar. Fjarlægið hluti sem hindra loftstreymi um loftrásirnar. Himna innan í tromlu eða á tromlugörðum. Hreinsið tromluna og tromlugarðana.
Vandamál Þurrkkerfi tekur óvenju langan tíma. Ábending: Eftir í mesta lagi 5 klst. lýkur þurrkkerfi sjálfkrafa (sjá “Þurrkkerfi endar“). Hugsanleg ástæða Úrlausn Lósigti stíflað. Hreinsið lósigti. Varmaskiptir óhreinn. Hreinsið varmaskipti. Hnappurinn MJÖG VIÐKVÆMT er inni og hleðsla er of mikil. Hnappurinn MJÖG VIÐKVÆMT hentar bara fyrir 3kg af þvotti eða minna. Of mikil hleðsla í tækinu. Dragið úr hleðslu. Þvotturinn ekki nógu vel undinn fyrir þurrkun. Vindið þvottinn nægilega vel.
Stillingar Markmið Framkvæmd 1. Snúið kerfisvalhnappi á eitthvert kerfi. 2. Haldið hnappinum HLJÓÐMERKI inni í u.þ.b. 5 sekúndur. Láta hljóðmerki heyrast, í Stutt hljóðmerki heyrist nokkrum sinnum. Gaumljósið hvert skipti sem kerfi HLJÓÐMERKI blikkar nokkrum sinnum. lýkur. Þar með er hljóðmerkið orðið fast í sessi. Stillingin er tekin af á sama hátt; fylgið liðum 1 og 2. 1. Snúið kerfisvalhnappi á eitthvert kerfi. 2. Haldið hnöppunum HLJÓÐMERKI og VIÐKVÆMT samtímis inni í u.þ.b. 5 sekúndur.
Tæknilegar upplýsingar 5 Þetta tæki uppfyllir eftirtaldar ESB-viðmiðunarreglur: – Viðmiðunarregla nr. 73/23/EWG frá 19.02.1973 um lágspennu – Viðmiðunarregla EMV nr. 89/336/EWG frá 03.05.1989 ásamt viðauka nr. 92/31/EWG – Viðmiðunarregla nr. 93/68/EWG frá 22.07.1993 Hæð x breidd x dýpt 85 x 60 x 60 cm Dýpt með opnar hleðsludyr 109 cm Hæðarstillingar 1,5 cm Tóm þyngd u.þ.b. 40kg Hleðsla (fer eftir þurrkkerfi) 1) mest 6kg Orkunotkun í samræmi við IEC 1121 s. e.
Leiðbeiningar um uppsetningu og tengingu 1 Öryggisleiðbeiningar vegna uppsetningar • Áður en tækið er tekið í notkun þarf að fjarlægja allar flutningsfestingar. Annars getur tækið orðið fyrir skemmdum. • Áður en tækið er tekið í notkun ber að fullvissa sig um að rafspenna og rafstraumur, sem skráð eru á tegundarplötuna, passi við rafspennu (málspennu) og rafstraum á staðnum þar sem á að setja tækið upp.. Upplýsingar um nauðsynlegt rafmagnsöryggi er líka að finna á tegundarplötunni.
3. Fjarlægið frauðplastlengjuna úr þurrkaranum. Tenging við rafmagn Leiðbeiningar um rafspennu, straumtegund og nauðsynlegt öryggi er að finna á tegundarspjaldinu. Tegundarspjaldið er nálægt hurðaropinu (sjá kaflann “Lýsing”). Að breyta hurðaropnun 1 Aðvörun! Aðeins fagmaður má flytja hjarirnar. Vinsamlega snúið ykkur til notendaþjónustu eða söluaðila. Aðvörun! Áður en hjarirnar eru fluttar skal taka rafmagnssnúruna úr sambandi; þegar vélin er fasttengd: skrúfið öryggi alveg úr eða rjúfið strauminn. 1.
6. Snúið einnig hlífum B og C um 180° og festið þær á hina hlið hurðarinnar. 7. Skrúfið hlífar E af framhlið tækisins, snúið um 180° og festið hinum megin við hurðaropið. 8. Skrúfið læsinguna F af, ýtið henni aðeins niður og takið hana af framhlið tækisins. 9. Togið kapaltengilinn úr hurðarlæsingu F. 10. Ýtið smelluhnappi neðan á hlíf G niður, togið hlífina aðeins niður og fjarlægið af framhlið tækisins. 11. Togið kapaltengilinn úr hlíf G. 12.
Aukabúnaður Hjá umboðsaðila er hægt að fá eftirtalinn aukabúnað: Festisett fyrir þvottavél/þurrkara Með þessari raðeiningu má stilla upp þurrkaranum ásamt AEGþvottavél (60cm breiðri, framhlaðinni) í turn til að spara gólfpláss. Þvottavélin er fyrir neðan, þurrkarinn fyrir ofan. Tvær útfærslur eru fáanlegar: – án vinnuborðs – með lausu vinnuborði Frárennslisbúnaður fyrir þéttivatn Útbúnaður til að hleypa þéttivatni beint í vask, vatnslás, niðurfallsrist eða þvíumlíkt.
Ábyrgðarskilmálar ÍSLAND Samkvæmt skilmálum Félags Raftækjasala Seljandi veitir kaupanda, TVEGGJA ÁRA ÁBYRGÐ*, frá tilgreindum afgreiðslutíma og er hún fólgin í viðgerð eða endurnýjun á hverjum þeim hluta þess sem áfátt kann að vera, enda bendi líkur til þess að um framleiðslu-eða efnisgalla sé að ræða.
Lágmúli 8, pósthólf 8760, 128 Reykjavik, sími 530-2800, Fax 530-2810, www.ormsson.is *Bræðurnir Ormsson ehf. veita ÞRIGGJA ÁRA ÁBYRGÐ á öllum AEG þvottavélum á Íslandi sem fyrirtækið annast sölu og dreifingu á skv. skilmálunum hér að framan. Þjónustumiðstöðvar viðskiptavina ÍSLAND Þjónusta á AEG heimilstækjum fyrir stór Reykjavíkursvæðið er hjá Raftækjaþjónustunni Lágmúla 8, sími 553-7500 og rafmagnsverkstæðum sem tengd eru umboðsmönnum Bræðranna Ormssson ehf. um land allt. Bræðurnir Ormsson ehf.
Þjónusta Þegar vandamál koma upp skaltu athuga hvort ekki sé hægt að leysa málið með upplýsingum úr leiðarvísinum (kafli “Hvað á að gera, þegar...”). Ef þú getur ekki leyst vandamálið upp á eigin spýtur skaltu hafa samband við þjónustuaðila eða viðgerðarþjónustu. Til að flýta fyrir afgreiðslu þurfa eftirtaldar upplýsingar að liggja fyrir: – tegundartákn – vörunúmer (PNC) – raðnúmer (S-No.
AEG Hausgeräte GmbH Postfach 1036 D-90327 Nürnberg http://www.aeg.hausgeraete.