User manual

INNSETNING
STAÐSETNING TÆKIS
Setja þarf þurrkarann upp á þurrum
stað þar sem óhreinindi safnast ekki
upp.
Loft verður að flæða frjálst kringum
tækið. Gætið þess að raufarnar fyrir loft-
flæði neðst á tækinu séu ekki stíflaðar.
Til að halda titringi og hávaða í lág-
marki, þegar þurrkarinn er í gangi, verð-
ur að setja hann á stöðugt og flatt yfir-
borð.
Þegar tækið er sett á sinn endanlega
stað, skal athuga hvort að það sé alveg
lárétt með hjálp hallamælis. Ef svo er
ekki er, skal stilla fæturna þangað til
tækið er alveg lárétt.
Ekki fjarlægja fæturna. Ekki takmarka bil
á milli gólfs og þurrkara með þykku
teppi, viðarbútum eða öðru samsvar-
andi. Þetta getur aukið hitann sem get-
ur valdið truflunum á starfsemi tækisins.
Hitastig hins heita lofts sem er í
þurrkaranum getur farið upp í
60°C. Þannig má ekki setja upp
tækið á gólfi sem þolir ekki hátt
hitastig.
Við notkun þurrkarans má um-
hverfishiti ekki fara niður fyrir +5
°C og ekki upp fyrir +35 °C, því
það getur haft óvænt áhrif á af-
köst tækisins.
Ef nauðsynlegt reynist að hreyfa
tækið, skal hreyfa það lóðrétt.
Ekki má setja upp tækið á bak-
við læsanlega hurð, rennihurð,
eða bakvið hurð með hjarir á
hinni hliðinni þannig að ekki sé
hægt að opna að fullu dyr
þurrkarans.
UMBÚÐIR FJARLÆGÐAR
VARÚÐ
Fjarlægja þarf allar umbúðir og flutnings-
búnað fyrir notkun.
Til að fjarlægja polýstýren fyrirstöðurnar:
1.
Opnið hleðsludyrnar.
2.
Togið plastslöngu með pólýstýren
fyrirstöðunum út úr tromlunni.
Það er hægt að stilla hæð þurrkarans. Til
þess þarf að stilla fæturna (sjá mynd).
15mm
UPPSETNING UNDIR
BORÐPLÖTU
Hægt er að setja upp tækið sem frístand-
andi eða undir eldhúsborðplötu sé rétt
rými til staðar (sjá mynd).
26
www.aeg.com