User manual
ÁBYRGÐARSKILMÁLAR
Samkvæmt skilmálum Félags Raftækjas-
ala.
Seljandi veitir kaupanda TVEGGJA ÁRA
ÁBYRGÐ frá tilgreindum afgreiðslutíma
og er hún fólgin í viðgerð eða endurnýjun
á hverjum þeim hluta þess sem áfátt kann
að vera, enda bendi líkur til þess að um
framleiðslu- eða efnisgalla sé að ræða.
Ábyrgðin nær til efnis og vinnulauna veg-
na hugsanlegra viðgerða, auk ferðakostn-
aðar (laun og akstur) viðgerðarmanns, allt
að 15 km hvora leið, eða flutnings tækis
sömu vegalengd sé tækið fyrirferðarmeira
eða þyngra en að kaupandi geti auðveld-
lega komið því sjálfur á verkstæði seljanda
eða þess, sem hann vísar til.
Kaupandi ber sjálfur kostnað af tilkynn-
ingu um bilun svo sem símakostnað og
annan slíkan. Sé bilað tæki utan byggðar-
lags seljanda, skal það borið undir hann,
hvort senda skuli það til viðgerðar eða
kveðja til nærstaddan viðgerðarmann.
Skuli tækið sent, er minnt á nauðsyn þess
að nota góðar og vel merktar umbúðir,
fara að fyrirmælum leiðarvísis, þegar hann
kveður á um sérstakan flutningsbúnað og
möguleikana á að tryggja tækið gegn
flutningsskemmdum. Ennfremur skal fylgja
lýsing á bilun. Skuli kvaddur til viðgerðar-
maður, afgreiðir seljandi varahluti til við-
gerðarinnar á sinn kostnað gegn því að
honum séu endursendir hinir gölluðu hlut-
ir ef hann óskar.
Vinnulaun og ferðakostnað viðgerðar-
manns að ofangreindu marki (15 km)
greiðir seljandi eftir sundurliðuðum reikn-
ingi viðgerðamanns enda beri reikningur-
inn með sér eftirtalin atriði:
1.
Heiti tækis, gerð, númer og afgreiðsl-
utíma, samkvæmt þessu skírteini.
2.
Viðgerðardag og lýsingu á fram-
kvæmdri viðgerð.
3.
Fullt nafn og heimilisfang viðgerðar-
manns eða fyrirtækis þess sem við-
gerðina annaðist.
Ábyrgðin nær ekki til bilana, sem framleið-
anda eða seljanda verður ekki um kennt,
svo sem bilana, sem stafa af flutningi, ran-
gri meðferð eða misnotkun, slælegu við-
haldi, slysni eða óhöppum, náttúruham-
förum, truflunum á rafkerfi hússins eða
veitunnar o.s.frv.
Ábyrgðin nær heldur ekki til óbeins tjóns
vegna hugsanlegra galla á tækinu, en
kaupanda er bent á möguleikana á að
tryggja sig gegn slíku hjá tryggingafélög-
um.
Skilyrði fyrir ábyrgðinni eru almenns eðlis,
svo sem að galli sé tilkynntur strax og
hans kann að verða vart og að ekki hafi
verið átt við tækið af aðilum óviðkomandi
seljanda, nema í samráði við hann.
28
www.aeg.com