User Manual

19
Íslenska
Börn frá 8 ára aldri og fólk með skert skyn eða skerta líkamlega-
eða andlega getu geta notað þetta tæki ef þau eru undir eftirliti
eða hafa fengið leiðbeiningar um hvernig á að nota tækið á
öruggan hátt og að það skilji hætturnar sem því fylgir. Börn eiga
ekki að leika sér með tækið. Börn eiga ekki að sjá um þrif og
viðhald nema undir eftirliti.
Þýtt úr upprunalegum leiðbeiningum.
RáðogleiðbeiningarfyrirBEKANTskrifborð
Hljóðstyrkur: minni en 55 dB(A)
Hæðarstilling:
ESB-útgáfa: 64-125 cm
Bandarísk útgáfa: 57,4-122,4
Burðarþol: 70 kg
Kjörhitastig við notkun: +5 til +40°C
Kjörhitastigviðgeymslu: -10 til +50°C
Rakastig: 20 til 80% við +30°C.
Agja: DC 29V, 200W / 220W (JP)
Framleiðandi: ROL ERGO
Módel:
ASW0579-2902002W /
ASW0643-29020002W (JP)
Notið tækið aðeins með meðfylgjandi
agjafaeiningunni.
Hver sem ber ábyrgð á uppsetningu og notkun þessa
borðs eða viðhaldi og viðgerð, ætti að lesa þessar
leiðbeiningar vandlega. Geymdu leiðbeiningarnar
nærri borðinu.
Uppsetningarleiðbeiningar
Borðið sett saman samkvæmt meðfylgjandi
samsetningarleiðbeiningum.
Tengdu snúruna úr einum fæti yr í þann næsta.
Tengdu fjarstýringuna við annan fótinn og
rafmagnssnúru við hinn. Snúrurnar sem liggja í
fæturna, stjórnbúnaðinn og í rafmagn ætti svo að
setja í meðfylgjandi net. Komið þeim þannig fyrir að
þær skemmist ekki, sjá samsetningarleiðbeiningar.
Tengdu rafmagnssnúruna í vegginnstungu. ATH!
Rafmagnssnúran verður að liggja þannig að hún geti
færst til.
Settu öryggislykilinn í innstunguna á
stjórnbúnaðinum.
Borðið er nú tilbúið til notkunar. Mótorinn stöðvast
sjálfkrafa þegar borðið hefur náð lægstu eða hæstu
mögulegu stillingu.
Notkun borðsins
Borðið er aðeins ætlað til notkunar sem vinnuborð
með möguleika á að stilla vinnuhæðina milli
standandi og sitjandi stöðu. Borðið má aðeins nota
innandyra og í þurru umhver (á skrifstofu o.þ.h.).
Ekki má ofhlaða borðið, burðarþol er 70 kg/145 lbs.
Mótorinn má ganga viðstöðulaust í eina mínútu að
hámarki. Eftir það þarf að hvíla mótorinn í u.þ.b. 9
mínútur áður en má nota hann aftur.
Fylgdueftirfarandileiðbeiningumþegarhæðiná
borðinu er stillt:
1. Stingdu öryggislyklinum í innstunguna á
stjórnbúnaðinum.
2. Gættu þess að ekkert sé fyrir borðinu áður en hæðin
er stillt.
3. Til að hækka eða lækka borðið þarf að þrýsta á
hnappinn með örvunum.
Öryggisleiðbeiningar
Þegar borðið er hækkað og lækkað þarf að gæta
þess að vera í nægilegri fjarlægð til að forðast að
klemmast á milli borðplötunnar og nærliggjandi
hluta.
Sú/sá sem hækkar og lækkar borðið þarf að vera vel
á verði þannig að enginn slasist og ekkert skemmist.
Borðplatan má ekki rekast utan í þannig að borðið
velti um. Fjarlægðu alltaf skrifborðsstól áður en
borðið er hækkað/lækkað.
Þegar borðið er skilið eftir eftirlitslaust þarf að
fjarlægja öryggislykilinn úr stjórnbúnaðinum og hann
geymdur þar sem börn ná ekki til.
Borðfótum má ekki breyta á nokkurn hátt. Gættu
þess að taka borðið alltaf úr sambandi við rafmagn
þegar þarf að sinna viðhaldi eða viðgerðum.
Breytingar á stjórnbúnaði eru stranglega bannaðar.
Borðið má ekki nota sem lyftu fyrir fólk.
Viðhald og viðgerðir
Eftir u.þ.b. vikunotkun, athugaðu hvort skrúfur séu
vel hertar.
Athugaðu tengingu milli stjórnbúnaðar og
vegginnstungu ef ekki er hægt að lækka eða hækka
borðið.