User Manual

10
Notkunarleiðbeiningar
Veggklæðningin er úr gegnheilu keramik
án kvoðu eða fjölliða. Hráefninu er þjappað
saman í miklum hita. Útkoman verður
yrborð sem er varið fyrir blettum og rispum
og er auðvelt í þrifum.
Umhirða og viðhald
• Sjóðandi vatn og slettur frá heitum mat
skemma ekki veggklæðninguna. Notaðu
rakan og mjúkan klút fyrir dagleg þrif og
milt hreinsiefni eða sápu. Þurrkaðu með
hreinum klút eða eldhúspappír.
• Veggklæðningin þolir est hreinsiefni
fyrir heimili og þar sem yrborðið er ekki
gljúpt sýgur það ekki í sig vökva sem gæti
skilið eftir sig bletti. Ef yrborðið er of lengi
í snertingu við hreinsiefni gæti það valdið
skaða eða breytt lit á yrborðinu. Skolaðu
strax af með vatni til að draga úr áhrifum af
hugsanlega skaðlegum efnum.
• Forðastu beina snertingu við opin eld.
• Ekki nota keramikhníf eða aðra
keramikhluti beint á yrborð
klæðningarinnar.
ÍSLENSKA