User manual
• Ekki hita vökva eða önnur matvæli í lokuðum ílátum. Líklegt er
að þau springi.
• Málmílát fyrir mat og drykki eru ekki leyfð meðan á
örbylgjumatreiðslu stendur. Þessi krafa á ekki við ef
framleiðandinn tilgreinir stærð og lögun málmíláta sem henta
fyrir örbylgjumatreiðslu.
• Notaðu aðeins áhöld sem henta til notkunar í örbylgjuofnum.
• Þegar matur er hitaður í plast- eða pappírsílátum skal hafa
auga með tækinu vegna möguleika á íkveikju.
• Tækið er ætlað til að hita matvæli og drykki. Þurrkun matvæla
eða fatnaðar og hitun hitapúða, inniskóa, svampa, rakra
klúta og þvíumlíks getur leitt til hættu á meiðslum, íkveikju eða
eldi.
• Ef reykur kemur úr heimilistækinu skal taka það úr sambandi
og halda hurðinni lokaðri til að kæfa alla loga.
• Hitun drykkja í örbylgju getur leitt til seinkaðrar gossuðu.
Auðsýna verður aðgát þegar ílátið er meðhöndlað.
• Innihald pela og barnamatskrukkna skal vera hrært eða hrist
og hitastigið athugað fyrir neyslu, til að forðast bruna.
• Egg í skurninni og heil harðsoðin egg ætti ekki að hita í
tækinu þar sem þau geta sprungið, jafnvel eftir að
örbylgjuhitun er lokið.
• Hreinsa ætti tækið reglulega og fjarlægja matarleifar.
• Misbrestur á að halda tækinu hreinu gæti leitt til þess að
yfirborðið spillist og það gæti haft áhrif á líftíma tækisins og
mögulega leitt til hættulegra aðstæðna.
Öryggisleiðbeiningar
Uppsetning
AÐVÖRUN! Einungis löggildur
aðili má setja upp þetta
heimilistæki.
• Fjarlægðu allar umbúðir.
• Ekki skal setja upp eða nota skemmt
heimilistæki.
• Fylgdu leiðbeiningum um uppsetningu
sem fylgja með heimilistækinu.
• Alltaf skal sýna aðgát þegar
heimilistækið er fært vegna þess að það
er þungt. Notaðu alltaf öryggishanska og
lokaðan skóbúnað.
• Dragðu heimilistækið ekki á
handfanginu.
ÍSLENSKA 6