User manual
Ef þú notar klukkuaðgerðirnar
Tímalengd, Lokatími slekkur
heimilistækið á hitaelementunum
eftir 90% af innstilltum tíma.
Heimilistækið notar afgangshita
til að halda eldun áfram þangað
til tímanum lýkur (3 - 20 mínútur).
Aðgerðir klukkunnar stilltar
Áður en þú notar aðgerðirnar
Tímalengd, Lokatími verður þú
fyrst að stilla hitunaraðgerð og
hitastig. Það slokknar sjálfkrafa á
heimilistækinu.
Þú getur notað aðgerðirnar
Tímalengd og Lokatími samtímis
ef þú vilt kveikja og slökkva
sjálfkrafa á heimilistækinu á
ákveðnum tíma seinna.
Aðgerðirnar Tímalengd og
Lokatími virka ekki þegar þú
notar kjöthitamælinn.
1. Stilltu hitunaraðgerð.
2. Ýttu á   aftur og aftur þangað til
skjárinn birtir nauðsynlegar aðgerðir
klukku og tengt tákn.
3. Ýttu á   eða   til að stilla á
nauðsynlegan tíma.
4. Ýttu á 
 til að staðfesta.
Þegar tímanum lýkur heyrist hljóðmerki. Það
slokknar á heimilistækinu. Skjárinn sýnir
skilaboð.
5. Ýttu á hvaða tákn sem er til að stöðva
merkið.
Hita + Halda
Skilyrði fyrir aðgerðinni:
• Stillt hitastig er hærra en 80°C.
• Aðgerðin Tímalengd er stillt.
Aðgerðin Hita + Halda heldur elduðum mat
heitum við 80°C í 30 mínútur. Hún fer í gang
eftir að bökunar- eða steikingarferli lýkur.
Þú getur kveikt eða slökkt á aðgerðinni í
valmyndinni Grunnstillingar.
1. Kveiktu á heimilistækinu.
2. Veldu hitunaraðgerðina.
3. Stilltu hitastigið fyrir ofan 80°C.
4. Ýttu á 
 aftur og aftur þar til skjárinn
sýnir Hita + Halda.
5. Ýttu á   til að staðfesta.
Þegar aðgerðinni lýkur heyrist hljóðmerki.
Aðgerðin helst áfram ef þú breytir
hitunaraðgerðunum.
Tímalenging
Aðgerðin Tímalenging lætur
hitunaraðgerðina halda áfram eftir að
Tímalengd er lokið.
Á við um allar hitunaraðgerðir
með Tímalengd eða Sjálfvirk
þyngd.
Á ekki við um hitunaraðgerðir
með kjöthitamæli.
1. Þegar eldunartíma lýkur heyrist
hljóðmerki. Ýttu á eitthvert tákn.
Skjárinn sýnir skilaboðin.
2. Ýttu á   til að virkja eða   til að hætta
við.
3. Stilltu lengd aðgerðarinnar.
4. Ýttu á 
.
Sjálfvirk ferli
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
ÍSLENSKA  18










