User manual

koma í veg fyrir þetta, hefur ofninn
öryggishitastilli sem rýfur
rafmagnstenginguna. Ofninn kveikir
sjálfkrafa á sér aftur þegar hitastigið
lækkar.
Góð ráð
AÐVÖRUN! Sjá kafla um
Öryggismál.
Ráðleggingar um eldun
Notaðu aðgerðina Matreiðsla með
þvinguðu loftstreymi til að forhita ofninn á
sem hraðastan hátt.
Þegar þú forhitar skaltu fjarlægja
vírhillurnar og bakkana úr ofnhólfinu til að
fá sem hröðust afköst.
Ofninn hefur fjórar hillustöður. Teldu
hillustöðurnar að neðan frá botni
ofnrýmisins.
Ofninn er með sérstakt kerfi sem setur loftið
í hringrás og endurnýtir stöðugt gufuna.
Með þessu kerfi getur þú eldað í
gufukenndu umhverfi og haldið matnum
mjúkum að innan og stökkum að utan. Það
minnkar eldunartíma og orkunotkun niður í
lágmark.
Raki getur þéttst í ofninum eða á glerplötum
hurðarinnar meðan á eldun stendur. Haltu
þig alltaf frá ofninum þegar þú opnar
ofnhurðina.
Þegar ofninn kólnar skaltu hreinsa rýmið
með mjúkum klút.
Kökur bakaðar
Opnaðu ekki ofnhurðina fyrr en 3/4
baksturstímans eru liðnir
Ef þú notar tvær bökunarplötur á sama tíma
skaltu hafa eina tóma hæð á milli þeirra.
Eldun á kjöti og fiski
Láttu kjötið standa í um það bil 15 mínútur
áður en þú skerð það svo að vökvinn seytli
ekki út.
Til að koma í veg fyrir of mikinn reyk í
ofninum meðan verið er að steikja skal
bæta svolitlu vatni í ofnskúffuna. Til að
koma í veg fyrir þéttingu reyks skal bæta
við vatni í hvert sinn sem það gufar upp.
Eldunartímar
Eldunartímar fara eftir tegund matvæla,
þéttni þeirra og magni.
Í byrjun skaltu fylgjast með frammistöðunni
þegar þú eldar. Finndu bestu stillingarnar
(hitastillingu, eldunartíma, o.s.frv.) fyrir
eldunaráhöldin þín, uppskriftir og skammta
þegar þú notar þetta tæki.
Ráðleggingar varðandi örbylgju
Settu matinn á glerbotnplötu fyrir örbylgju
neðst í rýminu.
Snúðu eða hrærðu í matnum þegar
affrystingar- og eldunartími er hálfnaður.
Hyldu matinn þegar hann er eldaður og
endurhitaður.
Settu skeiðina í flöskuna eða glasið þegar
drykkir eru hitaðir til að tryggja betri
dreifingu hita.
Settu matinn inn í ofnin án allra umbúða.
Aðeins er hægt er að setja tilbúnar máltíðir í
umbúðum í ofninn þegar setja má
umbúðirnar í örbylgju (athugaðu
upplýsingarnar á umbúðunum).
ÍSLENSKA
18