Operation Manual

181
Íslenska
BORÐHRÆRIVÉLIN NOTUÐ
Hraðastýringin notuð
ATH.: Borðhrærivélin getur hitnað við notkun. Ef álagið er mikið í langan tíma getur efsti
hluti einingarinnar orðið heitur. Þetta er eðlilegt.
1
Settu borðhrærivélina í samband við
viðeigandi rafmagnsinnstungu. Settu
alltaf hraðastillinguna á lægsta hraða
til að byrja með, auktu síðan smátt og
smátt hraðann, til að forðast að hráefnin
skvettist. Sjá töflu hér að neðan.
2
Ekki má skafa skálina þegar vélin er
í gangi. Hönnun skálar og hrærara
miðast við að ekki þurfi að skafa skálina
oft. Yfirleitt nægir að skafa einu sinni
eða tvisvar við hverja hræru.
BORÐHRÆRIVÉLIN SETT SAMAN
4
Lyftið fremri hluta hveitibrautarinnar
yfir brún skálarinnar og dragið fram.
Fjarlægið tengihluta og skál.
Leiðarvísir um hraðastýringu
Allar hraðastillingar byrja sjálfkrafa með Soft Start-eiginleikanum, sem þýðir að borðhrærivélin
byrjar á hægum hraða þegar hún er sett í gang til að koma í veg fyrir skvettur og „hveitirok“
í byrjun. Hún eykur svo hraðann fljótlega upp í valinn hraða fyrir besta árangur.
Hraði Aðgerð Fylgihlutur Lýsing
1
HRÆRA
Hæg hreyfing, blandar og mylur, byrjunarstig allrar
vinnslu. Notað til að bæta hveiti og þurrum efnum
í deig og blanda vökva í þurr efni. Ekki nota þrep 1
til að blanda eða hnoða gerdeig.
2
HÆGBLÖNDUN
Hæg hreyfing, blandar og mylur hraðar. Notað
til að blanda og hnoða gerdeig, þykk deig og
sælgæti. Byrjunarstig fyrir kartöflumús og annað
grænmetismauk. Notað til að hræra smjörlíki
saman við hveiti og til að hræra þunn og blaut deig.
4 BLÖNDUN
HRÆRING
Til að blanda milliþykk deig, svo sem kökudeig.
Notað til að blanda sykri og feiti og til að bæta
sykri út í eggjahvítur til dæmis til að búa til marens.
Miðlungshraði fyrir kökublöndur.
6
HRÆRING,
KREMAÐ
Meðalhröð hræring (kremkennd áferð) eða þeyting.
Notað sem lokastig á kökudeig, kleinuhringi og
önnur deig. Hæsti hraði fyrir kökudeig.
8
HRÖÐ
HRÆRING
ÞEYTING
Notað til að þeyta rjóma, eggjahvítur og glassúr.
10
HRÖÐ ÞEYTING
Notað til að þeyta minni skammta af rjóma,
eggjahvítur eða til að ljúka við kartöflumús.
ATH.: Hægt er að velja hraðastillingar á milli hraðaþrepana í ofangreindri töflu. Þannig má
velja 3, 5, 7 og 9 og fínstilla hraðann. Ekki fara yfir Hraða 2 þegar verið er að útbúa gerdeig
þar sem það getur valdið skemmdum á borðhrærivélinni.
W10572619A_13_IS.indd 181 4/12/13 9:21 AM