Operation Manual

220
Íslenska
MIKILVÆG ÖRYGGISATRIÐI
GEYMDU ÞESSAR LEIÐBEININGAR
Þessi vara er eingöngu ætluð til heimilisnota.
Merkingar á þessu tæki eru í samræmi við Evróputilskipun
2002/96/EB um raf- og rafeindabúnaðarúrgang (Waste
Electrical and Electronic Equipment [WEEE]).
Með því að tryggja að þessari vöru sé fargað á réttan
hátt hjálpar þú til við að koma í veg fyrir hugsanlegar
neikvæðar afleiðingar fyrir umhverfið og heilsu manna,
sem annars gætu orsakast af óviðeigandi meðhöndlun við
förgun þessarar vöru.
Táknið á vörunni, eða á skjölum sem fylgja vörunni,
gefur til kynna að ekki megi meðhöndla þetta tæki sem
heimilisúrgang. Þess í stað skal afhenda hana á viðeigandi
stað þar sem raf- og rafeindabúnaði er safnað saman til
endurvinnslu.
Förgun verður að fara fram í samræmi við
umhverfisreglugerðir.
Fyrir ítarlegri upplýsingar um meðhöndlun, endurheimt
og endurvinnslu þessarar vöru, vinsamlegast hafðu
samband við bæjarstjórnarskrifstofur í þínum heimabæ,
förgunarþjónustu eða verslunina þar sem þú keyptir
vöruna.
Þegar raftæki eru notuð skal alltaf fylgja mikilvægum
öryggisráðstöfum til að draga úr hættunni á eldsvoða,
raflosti, og/eða meiðslum á fólki, að meðtöldu eftirfarandi:
1. Lestu allar leiðbeiningar.
2. Til að verjast hættunni af raflosti skal ekki setja
blandarann í vatn eða annan vökva.
3. Strangt eftirlit er nauðsynlegt þegar tækið er notað af
eða nálægt börnum.
4. Taktu tækið úr sambandi við tengil þegar það er ekki í
notkun, áður en hlutir eru settir á eða teknir af og fyrir
hreinsun.
5. Forðastu að snerta hluti sem hreyfast.
6. Ekki nota blandarann með skemmdri snúru eða kló.
Ekki heldur eftir að tækið hefur bilað, dottið eða verið
skemmt á einhvern hátt. Farðu með blandarann til
næstu viðurkenndu þjónustumiðstöðvar til skoðunar,
viðgerðar eða stillingar á raf- eða vélhlutum.
7. Ekki nota blandarann utanhúss.
8. Ekki láta rafsnúruna hanga fram af borði eða bekk.
9. Ekki setja hendur eða áhöld í könnuna á meðan
blandað er til draga úr hættu á alvarlegum meiðslum
á fólki og skemmdum á bandaranum. Nota má sleif
en aðeins þegar blandarinn er ekki í gangi.
10. Hnífurinn er beittur. Farðu varlega með hann.
11. Til að draga úr hættunni á meiðslum skal aldrei setja
læsikragann eða hnífasamstæðuna á undirstöðuna án
þess að kannan sé rétt sett á.
12. Hafðu alltaf lokið á þegar blandarinn er notaður.
13. Notkun fylgihluta, þar með taldar könnur, sem eru
ekki viðurkenndar af KitchenAid geta valdið hættu
og meiðslum á fólki.
14. Þegar heitir vökvar eru blandaðir
skal fjarlægja miðhluta tvískipta
loksins.
15. Þessi vara er eingöngu ætluð til heimilisnota.
16. Ekki er ætlast til að fólk (þar með talin börn) með minni
líkamlega-, skyn- eða andlega getu, eða sem skortir
reynslu og þekkingu, noti þetta tæki, nema að einhver
sem ber ábyrgð á öryggi þess hafi haft eftirlit með því
eða geti veitt leiðbeiningar varðandi notkun tækisins.
17. Hafa ætti eftirlit með börnum til að tryggja að þau
leiki sér ekki með tækið.
W10482505A_13_ICE.indd 220 4/3/12 11:32 AM