Operating Instructions and Installation Instructions

is 07/13
J. Þráðlaust, lyklalaust aðgangskerfi
(aðeins með 747EV þráðlausri kóðalæsingu):
Veljið persónulegan 4 stafa talnakóða fyrir notkun hurðarinnar.
K. Tímabundinn aðgangur
(aðeins með 747EV þráðlausri kóðalæsingu):
Hægt er að stilla inn tímabundinn kóða fyrir takmarkaðan aðgang að
bílskúrnum (annaðhvort með tímatakmörkun eða takmörkuðum fjölda
opnunaraðgerða).
L. Lokun með einum hnappi
(aðeins með 747EV þráðlausri kóðalæsingu):
Hægt er að loka hurðinni án aðgangskóða í hvaða stöðu sem er (ekki
hægt að opna).
M. Rafhlöður CM475EV og CM475SOL (24 V tengi):
Ef rafmagnið fer af getur rafhlaðan séð fyrir orku í allt að 24 tíma.
Ef rafmagnið fer af getur sólarorkurafhlaðan séð fyrir orku í allt að 24
tíma (áætlað frá og með 2014).
N. myQ ( aðeins með 828EV netgáttinni (Gateway):
Gerir kleift að stjórna bílskúrshurðinni í gegnum internetið eða
samhæfða farsíma.
O. Bílskúrshurðaskynjari
(aðeins með 829EV bílskúrshurðaskynjara):
Getur gefið frá sér sýnileg merki (með LED-ljósum) og hljóðmerki
þegar fylgst er með stöðu hurðar. Einnig er hægt að nota tækið til að
loka hurðinni.
P. Hreyfiskynjari með geisla sem aðstoðar við að leggja í bílskúr
(Ljóshlið og skynjari með geisla nauðsynleg)
Hraðtengiklemmur 2 og 3
(fáanlegt u.þ.b. frá og með júlí 2013)
Q. Straumur til ytri tækja (24 volta klemma)
24 V DC/hám. 50 mA
Athugið: Fyrir ytri (fjölnota) móttakara verður að stilla af biðstöðu fyrir
minna en 1 W.
R. Stillt af/á biðstöðu fyrir minna en 1 W
Þegar búnaðurinn kemur frá verksmiðju er alltaf stillt á biðstöðu fyrir
minna en 1 W.
(Eftir að slokknar á ljósi og bílskúrshurð hefur verið lokað.)
Stillt af biðstöðu fyrir minna en 1 W:
1. Takið tækið úr sambandi við rafmagn.
2. Haldið UPP- og NIÐUR-hnöppunum á bakhlið stilliborðsins báðum
inni í einu.
3. Tengið tækið aftur við rafmagn á meðan hnöppunum er haldið inni.
4. Eftir u.þ.b. 5 sekúndur blikkar ljós hurðaopnarans 10x til staðfestin-
gar. Athugið: Í hvert sinn sem hurðaopnarinn er settur aftur í sam-
band við rafmagn blikkar ljósið á honum 10x til að gefa til kynna að
stillt hafi verið af biðstöðu fyrir minna en 1 W.
Stillt á biðstöðu fyrir minna en 1 W:
Sjá „Sett á“
Ábendingar:
- Ef ljóshliðið var rofið verður biðtíminn færður aftur til baka
(hefst frá byrjun).
- Sjálfvirk lokun virkar ekki í stöðunni fyrir aukastöðvun.
- Til þess að hægt sé að gera sjálfvirka lokun virka þarf bílskúrshurð-
aopnarinn að vera kominn í opnu endastöðuna.
Úrræðaleit:
Vandamál: Hurðaopnarinn virkar ekki án ljóshliðs.
Lausn: Engin bilun. Rétt. Hjá þessu verður ekki komist um leið og
ljóshliðið hefur verið tengt.
E. Skipt á milli hraðrar og hægrar hraðastillingar
Lýsing á virkni:
Hurðaopnarinn velur sjálfkrafa nauðsynlegan hraða.
Skipt um hraða:
1. Færið hurðina í lokuðu endastöðuna.
2. Ýtið samtímis á UPP- og NIÐUR-hnappana þar til ljósið á hurðaop-
naranum blikkar.
Varúð: Af öryggisástæðum er hraðastillingin hægari á hurðum með
styttri brautarlengd en 190 cm. Heilar hurðir, lyftihurðir og allar gerðir
hurða sem opnast út á við má aðeins hreyfa í hægri hraðastillingu.
F. Hnappar á fjarstýringu tengdir við OPNA, STÖÐVA eða LOKA
Lýsing á virkni:
Hægt er að nota hvaða hnapp sem er á fjarstýringunni fyrir aðger-
ðirnar OPNA, STÖÐVA eða LOKA.
OPNA:
Ýtið samtímis á gula samstillingarhnappinn og OPNA-hnappinn þar til
LED-ljósið kviknar. Ýtið því næst á hnappinn sem óskað er eftir að
stýri aðgerðinni OPNA og bíðið eftir að ljósið á opnaranum blikki.
STÖÐVA:
Ýtið samtímis á gula samstillingarhnappinn og rétthyrnda stillingar-
hnappinn þar til LED-ljósið kviknar. Ýtið því næst á hnappinn á
fjarstýringunni sem óskað er eftir að stýri aðgerðinni STÖÐVA og bíðið
eftir að ljósið á opnaranum blikki.
LOKA:
Ýtið samtímis á gula samstillingarhnappinn og NIÐUR-hnappinn þar til
LED-ljósið kviknar. Ýtið því næst á hnappinn á fjarstýringunni sem
óskað er eftir að stýri aðgerðinni LOKA og bíðið eftir að ljósið á
opnaranum blikki.
G. Stilling fyrir fríið (aðeins með 78EV veggeiningu):
Þegar þessi stilling er virk er ekki hægt að hreyfa hurðina með
fjarstýringu.
H. Stilling á fjarstýringu með veggeiningu
(aðeins með 78EV veggeiningu).
I. Kveikt og slökkt á ljósi hurðaopnarans
(aðeins með 78EV veggeiningu):
Hægt er að kveikja og slökkva á ljósi hurðaopnarans hvenær sem er.
Sjálfvirk lýsing (aðeins með ljóshliði og veggeiningu)
Ef hurðin er opin og farið er fyrir ljósgeislann kviknar sjálfkrafa á
ljósinu.
Sett á: Haldið „LIGHT“-hnappinum á veggeiningunni inni í 10
sekúndur.
Tekið af: Sjá „Sett á“