Uppflettihandbók

E17
Uppflettikafli
C Takmarkanir á myndvinnslu
Athuga skal eftirfarandi takmarkanir þegar breyttu afriti er breytt enn frekar með öðrum
breytingaraðgeum.
Afritum sem búin eru til með breytingaraðgerðum er ekki hægt að breyta frekar með sömu aðgerð og
notuð var til að búa þau til.
Þegar aðgerðirnar fyrir litla mynd eða skurð eru sameinaðar annarri breytingaraðgerð skaltu nota
aðgerðirnar fyrir litla mynd og skurð þegar búið er að nota hina aðgerðina.
Lagfæringaraðgerðum, svo sem fegrunarlagfæringunni mýkingu húðar, má beita á myndir sem teknar eru
með aðgerðinni fyrir mýkingu húðar (E57).
C Upprunalegar og breyttar myndir
Afritum sem búin eru til með breytingaraðgerðum er ekki eytt ef upprunalegu myndinni er eytt.
Upprunalegu myndunum er ekki eytt ef afritum sem búin eru til með breytingaraðgerðum er eytt.
Breytt afrit eru vistuð með sama tökudegi og -tíma og frumritið.
Stillingar prentraðar (E60) og varnarstillingar (E65) haldast ekki virkar í breyttum afritum.
Breytingaraðgerðir notaðar Breytingaraðgerðir sem hægt er að nota
Quick effects (fljótleg áhrif)
Quick retouch (fljótleg
lagfæring)
D-Lighting
Hægt er að nota aðgerðir fyrir fegrunarlagfæringu, litlar myndir og skurð.
Glamour retouch
(fegrunarlagfæring)
Hægt er að nota aðgerðir fyrir fljótleg áhrif, fljótlega lagfæringu,
D-Lighting, litlar myndir og skurð.
Small picture (lítil mynd)
Skurður
Ekki er hægt að nota aðra breytingaraðgerð.