Notendahandbók

56
x
D Taka í myndatöku með skjá
Lokaðu augnglerslokara leitarans (0 106) til að koma í veg fyrir að ljós komi
í gegn um leitarann og trufli lýsinguna.
Þrátt fyrir að það birtist ekki á endanlegu myndinni geta flökt, rákir og
bjögun sést á skjánum undir flúrljósi, gasperu, eða natrínlömpum eða ef
myndavélinni er snúið lárétt eða ef hlutur hreyfist mjög hratt í gegnum
rammann (hægt er að minnka flökt og rákir með því að nota Flicker
reduction (flöktjöfnun); 0 329).
Bjartur ljósgjafi getur skilið eftir
eftirmyndir á skjánum þegar myndavélinni er snúið.
Einnig geta ljósari
punktar komið fram.
Þegar þú tekur mynd með myndatöku með skjá skaltu
forðast að beina myndavélinni að sólinni eða öðrum sterkum ljósgjöfum.
þessum varúðarráðstöfunum ekki fylgt getur það valdið skemmdum á innri
rafrásum myndavélarinnar.
Myndataka með skjá hættir sjálfkrafa ef linsan er fjarlægð.
Myndatöku með skjá lýkur sjálfkrafa til að koma í veg fyrir skemmdir á innri
rás myndavélarinnar; farðu úr myndatöku með skjá þegar myndavélin er
ekki notuð.
Athugaðu að hitastig innri rafrása myndavélarinnar getur
hækkað og suð (bjartir blettir, handahófskenndir bjartir dílar eða þoka)
getur birst á skjánum við eftirfarandi aðstæður (myndavélin getur einnig
orðið áberandi heit, en þetta þarf ekki að gefa til kynna bilun):
Umhverfishitinn er hár
Myndavélin hefur verið notuð í lengri tíma í myndatöku með skjá eða við
upptöku hreyfimynda
Myndavélin hefur verið notuð í langan tíma í stöðugri afsmellistillingu
Ef myndataka með skjá byrjar ekki þegar þú ýtir á a hnappinn, bíddu þar til
innri rafrás kólnar og reyndu þá aftur.
Upptaka hreyfimynda er ekki í boði meðan á myndatöku ljósmynda með
skjá stendur. Veldu myndatöku hreyfimynda með skjá (0 59) til að taka upp
hreyfimyndir.