User manual
Ofn stillingar Notkun
Rafmagnsgrill
Hitagrill er önnur aðferð við að elda fæðutegundir sem venjulega
eru tengdar hefðbundnu grilli. Grillelementið og vifta ofnsins vinna
samtímis og láta heitt loft leika um matinn. Forstillt hitastig: 180°C
Hæsta hitastig: 200 °C.
Grill
Beinn hiti er gefinn á miðsvæði grillpönnuna í gegnum grillið.
Grillið er mjög hentugt til að elda litla skammta. Þannig sparast
einnig orka. Forstillt hitastig: 250°C
Afþiðnun
Ofnviftan starfar án hita og kemur hringrás á loft inni í ofninum
sem er við stofuhita. Þetta kerfi hentar sérstaklega vel fyrir að
afþíða viðkvæmar tegundir matar sem hiti gæti valdið skemmd-
um á, t.d. fylltar tertur, tertur með kremi, smjördeigskökur, brauð
og annan gerbakstur.
Pyrolytic þrif Með þessari stillingu er hægt að þrífa ofninn vel að innan.
Notkun ofnsins
Mikilvægt! Leggið ekki álpappír eða
bökunarplötur o.s.frv. á ofnbotninn vegna
þess að hitinn sem þá myndast getur
skemmt glerungshúð ofnsins. Setjið föt og
potta, eldföst mót og potta og líka álbakka á
hilluna sem sett er í rennurnar fyrir hillur.
Þegar matur er hitaður þá myndast gufa líkt
og í katli. Þegar gufan kemst í snertingu við
glerið á ofnhurðinni þá þéttist hún og myndar
örsmáa dropa.
Til að draga úr gufumyndun þá á alltaf að
forhita ofninn í 10 mínútur.
Við mælum með því að rakinn sé þurrkaður
af eftir hverja eldun.
Mikilvægt! Ávallt skal grilla með
ofnhurðina lokaða.
Opnið ofnhurðina alltaf með varúð. Látið
ekki hurðina "detta niður" heldur haldið við
hana með handfanginu þar til hún er alveg
opin
Ofninn er með fjórar plötuhillur.
Plötuhillurnar eru númeraðar neðan frá
og upp eins og sést á myndinni.
Ofnplötum sem rennt er inn þarf alltaf að
ýta alla leið inn (sjá mynd).
Setjið ekki eldunarílát eða potta beint á
ofnbotninn.
Heitt loft
Maturinn eldast vegna þess að heitu lofti er
blásið um ofninn að innan með viftu sem
komið er fyrir á bakvegg ofnsins.
Hitinn berst jafnt og hratt til allra hluta ofnsins.
Þetta þýðir að hægt er að elda mismunandi
gerðir matar samtímis eða mat sem komið er
fyrir á mismunandi ofnhillum.
Kostir þess að elda með þessu kerfi eru:
–
Fljótari forhitun
Þar sem blástursofn nær upp hita mjög
fljótt er venjulega ekki þörf á að forhita hann
en samt getur verið að það þurfi að bæta
5-7 mínútum við eldunartímann. Ef baka á
eftir uppskriftum sem þurfa hærra hitastig ,
t.d. brauð, kökur, skonsur, frauðbökur
(soufflé), næst bestur árangur ef ofninn er
forhitaður á undan.
– Lægra hitastig
Eldun í blástursofni þarf venjulega lægra
hitastig en eldun í venjulegum ofni.
Farið eftir hitastigum sem mælt er með á
eldunartöflunni. Munið að lækka yfir- og
undirhitann um 20-25°C miðað við venju-
legar uppskriftir ykkar.
progress 7