User manual

TENGING VIÐ RAFMAGN
Ađvörun Framleiðandin er ekki ábyrgur
ef þú fylgir ekki þessum öryggisreglum.
Þetta heimilistæki þarf að vera jarðtengt
í samræmi við öryggisreglur.
Gætið þess að málspennan og tegund
aflgjafa á merkiplötunni sé sú sama og
rafspenna og aflgjafi orkuveitunnar á
staðnum.
Alltaf nota rétt uppsetta innstungu sem
gefur ekki raflost.
Ekki nota fjöltengi, millistykki eða fram-
lengingarsnúrur. Það skapar eldhættu.
Ekki skipta sjálf(ur) um rafmagnssnúru.
Hafið samband við viðgerðarþjónust-
una.
Gætið þess að hægt sé að ná til klóar-
innar eftir að tækinu er komið fyrir.
Ekki toga í snúruna til að taka heimilis-
tækið úr sambandi. Togið alltaf í raf-
magnsklóna.
UMHVERFISÁBENDINGAR
Táknið á vörunni eða á umbúðum
hennar táknar að vöruna megi ekki
meðhöndla sem heimilissorp. Þess í stað
ber að skila henni á viðeigandi
endurvinnslustöð sem tekur við
rafeindabúnaði og rafmagnstækjum. Með
því að tryggja að vörunni sé fargað á réttan
hátt stuðlar þú að því að koma í veg fyrir
neikvæð áhrif sem röng förgun vörunnar
gæti hugsanlega haft á umhverfi og heilsu.
Nánari upplýsingar um endurvinnslu
þessarar vöru er hægt að fá hjá yfirvöldum
hreinsunarmála í þínu sveitarfélagi eða í
versluninni þar sem varan var keypt.
Umbúðirnar eru umhverfisvænar og hægt er
að endurvinna þær. Plasthlutir eru merktir,
til dæmis >PE<, >PS<, o.s.frv. Vinsamleg-
ast fargið umbúðum á viðeigandi hátt á
endurvinnslustöð.
Ađvörun Heimilistækinu skal farga í
eftirfarandi skrefum:
Takið rafmagnsklóna úr innstung-
unni.
Klippið rafmagnssnúruna af vélinni og
fargið ásamt klónni.
Fleygið hurðarlokunni. Það kemur í
veg fyrir að börn geti lokað sig inni í
heimilistækinu en það gæti verið lífs-
hættulegt.
progress 17